Fréttir

true

Sex milljarðar í erlenda netverslun frá Kína í fyrra

Íslendingar keyptu mest í erlendri netverslun frá Kína eða fyrir rúmlega 6 milljarða króna árið 2023, en landsmenn keyptu alls fyrir 27,4 milljarða króna í erlendri netverslun árið 2023. Í öðru sæti yfir viðskiptalöndin eru Bandaríkin með 4,2 milljarða króna og Bretland í þriðja sæti með 3,2 milljarða króna. Þýskaland og Holland fylgja svo fast…Lesa meira

true

Herðir á frostinu á morgun

Víða var allmikið frost í gærkvöldi og verður ekkert lát á því. Spáin í dag gerir ráð fyrir norðan- og norðvestan 10-18 m/s. Snjókoma verður á norðanverðu landinu og líkur á versnandi færð þar, en lengst af þurrt sunnan heiða. Á morgun verður sömuleiðis norðanátt, víða 8-13 m/sek, en mögulega vindstrengir við fjöll og skafrenningur.…Lesa meira

true

Skagamenn með seiglusigur á Snæfelli

ÍA og Snæfell mættust í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum á Akranesi. Fyrir leik var ÍA í sjöunda sæti með 14 stig og Snæfell með fjögur í neðsta sætinu og ljóst að sigur í leiknum myndi skipta bæði lið miklu máli. Skagamenn eru að…Lesa meira

true

Perlað verður á Akranesi og í Borgarnesi á næstu dögum

Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Lokavika átaksins er nú gengin í garð og Kraftur heldur áfram að selja „Lífið er núna“ armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. „Við erum búin að fara hringinn í kringum landið með perluviðburði á…Lesa meira

true

Nýtt starfsfólk hjá Grundarfjarðarbæ

Sigurður Valur Ásbjarnarson, byggingartæknifræðingur, tók við stöðu skipulagsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar, tímabundið, þann 1. janúar síðastliðinn. Sigurður Valur hefur áður gegnt stöðu bæði byggingar- og skipulagsfulltrúa bæjarins, auk þess að hafa langa reynslu sem tæknifræðingur, sem skipulags- og byggingarfulltrúi og sem bæjarstjóri í nokkrum sveitarfélögum. Bærinn kaupir þjónustu byggingarfulltrúa af EFLU og sinnir Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfræðingur…Lesa meira

true

Hagkvæmara að greiða einum en mörgum

Linda Guðmundsdóttir verkefnisstjóri DalaAuðs ritaði nýverið bréf til byggðarráðs Dalabyggðar þar sem vakin er athygli á að erfiðlega hafi gengið að fá sjúkraþjálfara til starfa í byggðarlaginu og bent á mögulega lausn í því sambandi. Vitnaði Linda í umræðu um málið á íbúafundi DalaAuðs í nóvember á síðasta ári. Þar var m.a. bent á að…Lesa meira

true

Þorrablót í Heiðarskóla

Þorrablót Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit var haldið síðasta fimmtudag. Blótið hófst á skemmtun í matsal þar sem sungin voru nokkur lög og hvert og eitt stig sá um skemmtiatriði. Unglingar settu upp fjölbreytta þraut þar sem fulltrúar frá yngsta stigi, miðstigi, unglingastigi og úr starfsmannahópnum öttu kappi í æsispennandi leik sem gekk út á að koma…Lesa meira

true

Mislingar og mikilvægi bólusetningar

Mislingasmit greindist á Landspítala hjá fullorðnum einstaklingi sem kom til landsins fimmtudaginn 1. febrúar. Sóttvarnalæknir brást tafarlaust við upplýsingum um smitið með smitrakningu í samvinnu við umdæmislækni höfuðborgarsvæðis, heilsugæsluna og Landspítala. Búið er að hafa samband við alla sem hugsanlega hafa verið útsettir fyrir smiti. Mislingar er mjög smitandi veirusjúkdómur sem einkennist af hita og…Lesa meira

true

Hundrað daga hátíð í Grundó og Brekkó

Síðasta miðvikudag héldu nemendur í fyrsta bekk í Grundaskóla á Akranesi upp á þann merka áfanga að hafa verið hundrað daga í skólanum. Dagurinn var tileinkaður tölunni 100 þar sem unnin voru skemmtileg verkefni í tengslum við hana. Nemendur bjuggu sér til kórónur sem þau báru hreykin allan daginn, gerðu fallega sjálfsmynd og skrifuðu niður…Lesa meira

true

Aðalsveitakeppni BB hefst 19. febrúar

Í kvöld og næsta mánudagskvöld einnig verður spilaður eins kvölds tvímenningur hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar í Logalandi. Fyrir viku áttu sveitungarnir Brynjólfur í Hlöðutúni og Jóhann á Steinum feiknakvöld, hreinlega rassskelltu andstæðinga sína og uppskáru tæplega 70% skor. Þeir munu mæta í vígahug að nýju í kvöld. Mánudagskvöldið 19. febrúar hefst svo aðalsveitakeppni félagsins og verður…Lesa meira