
Guðmundur Rúnar og Sigurður Valur, að loknum fundi með bæjarstjóra í þarsíðustu viku. Ljósm. Grundarfjarðarbær
Nýtt starfsfólk hjá Grundarfjarðarbæ
Sigurður Valur Ásbjarnarson, byggingartæknifræðingur, tók við stöðu skipulagsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar, tímabundið, þann 1. janúar síðastliðinn. Sigurður Valur hefur áður gegnt stöðu bæði byggingar- og skipulagsfulltrúa bæjarins, auk þess að hafa langa reynslu sem tæknifræðingur, sem skipulags- og byggingarfulltrúi og sem bæjarstjóri í nokkrum sveitarfélögum. Bærinn kaupir þjónustu byggingarfulltrúa af EFLU og sinnir Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfræðingur þeim verkefnum áfram. Þetta kemur fram á FB síðu Grundarfjarðarbæjar.