Nemendur á yngsta stigi voru með söngatriði. Ljósm. heiðarskóli

Þorrablót í Heiðarskóla

Þorrablót Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit var haldið síðasta fimmtudag. Blótið hófst á skemmtun í matsal þar sem sungin voru nokkur lög og hvert og eitt stig sá um skemmtiatriði. Unglingar settu upp fjölbreytta þraut þar sem fulltrúar frá yngsta stigi, miðstigi, unglingastigi og úr starfsmannahópnum öttu kappi í æsispennandi leik sem gekk út á að koma blýanti ofan í flösku, ná epli upp úr vatnsbaði með hendur fyrir aftan bak og í pokahlaupi.

Þorrablót í Heiðarskóla - Skessuhorn