Fréttir

true

Hinn raunverulegi þjóðararfur

Það er sólríkur dagur en kaldur þegar blaðamaður rennir inn Reitarveginn í Stykkishólmi til að leita uppi gömlu verbúðirnar. Þar er Jón Ragnar Daðason að finna, hann stendur á fertugu og er tréskipasmiður. Í framtíðinni verða þarna íbúðir og léttur iðnaður samkvæmt deiliskipulagi bæjarins. Verkstæði Jóns er í innstu verbúðinni. Þegar þangað er komið er…Lesa meira

true

Tvær milljónir söfnuðust á styrktartónleikum fyrir Ármann Bjarna

Hinn tvítugi Ármann Bjarni Eyjólfsson lenti í vinnuslysi að morgni 17. febrúar síðastliðnum þegar þriggja tonna steypueining féll ofan á vinstri fót hans með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fótinn við miðjan legg. Ármann hefur verið í endurhæfingu á Grensásdeild síðan 15. mars og hefur nú þegar fengið nýjan fót og er kominn á ról.…Lesa meira

true

Endurnýja heitavatnslögn í Melasveit

Framkvæmdir eru nú hafnar á vegum Veitna við endurnýjun sjö kílómetra af aðveituæð hitaveitu (HAB lögn) í landi Narfastaða og Hafnar í Melasveit. Lögnin liggur eins og kunnugt er frá Deildartunguhver í Reykholtsdal og á Akranes með viðkomu í Borgarnesi. Á þessum hluta leiðarinnar er lögnin samsíða þjóðveginum. Þróttur ehf. er verktaki við framkvæmdina. Á…Lesa meira

true

Páskatöltmót Dreyra fór fram á Æðarodda

Hestamannafélagið Dreyri hélt sitt árlega páskatöltmót mánudaginn 10. apríl á Æðarodda. Mótið var opið en keppt var alls í fimm flokkum og bárust um 40 skráningar. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur. Forkeppni hófst um kl. 10 um morguninn með stórsýningu pollaflokks þar sem þátttakendur mættu m.a. í ofurhetjubúningum. Keppni lauk síðan um miðjan dag…Lesa meira

true

Byggja upp kjúklingaeldi í Dölum í samstarfi við Reykjagarð

Bændurnir í Miðskógi í Dölum, Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Guðrún Esther Jónsdóttir, hafa undirritað samstarfssamning við Reykjagarð hf. um uppbyggingu kjúklingaeldis á jörð sinni. Í því felst að í Miðskógi verður byggt tæplega 900 fermetra eldishús þar sem alinn verður kjúklingur frá eins dags gömlum og þar til hann er fullvaxinn til slátrunar, um 35-37…Lesa meira

true

Tileinkar frænda sínum nýtt númer á treyjunni

Fréttavefurinn fotbolti.net segir áhugaverða sögu sem tengist knattspyrnumanninum knáa úr Breiðuvíkinni á Snæfellnesi; Brynjari Gauta Guðjónssyni. „Brynjar Gauti, miðvörður Fram, fer inn í þetta sumar með nýtt númer á bakinu. Hann frumsýndi nýja númerið í 2-2 jafntefli gegn FH í fyrstu umferð Bestu deildarinnar,“ segir í frétt á fotbolti.net. Brynjar er núna númer 69 en…Lesa meira

true

Borgarverk býður rútu fyrir stuðningsmenn Skallagríms

Fyrsti leikurinn í úrslitaeinvígi Skallagríms og Hamars í Hveragerði um laust sæti í Subway deildinni í körfubolta karla fer fram annað kvöld, fimmtudag kl. 19.15 í Hveragerði. Sigra þarf í þremur leikjum til að tryggja sér sæti í deildinni. Félagar í Skallagrími í Borgarnesi hyggjast fjölmenna til Hveragerðis annað kvöld og hefur Borgarverk lagt til…Lesa meira

true

Kortavelta var að raunvirði sú mesta í mars

Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að heildar greiðslukortavelta hérlendis í mars síðastliðnum nam rúmum 108 milljörðum króna og jókst um 20,8% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Innlend kortavelta í verslun nam rúmum 45,6 milljörðum kr. í mars og jókst um rúm 13,7% á milli ára. Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis nam rúmum 22,2…Lesa meira

true

N1 biður um frest á að hefja uppbyggingu við Hausthúsatorg

Festi hf. og Akraneskauptaður hafa að undanförnu átt í viðræðum um tímaramma vegna áforma Festis um byggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar N1 við Hausthúsatorg á Akranesi. Þau áform voru kynnt ítarlega í Skessuhorni í október 2021. Í fundargerð bæjarráðs frá 30. mars síðastliðinn kemur fram að Festi hafi nú óskað eftir viðbótarfresti á að lóðaskipti við bæinn…Lesa meira

true

Fallvarnarblakkir settar upp við klifurvegg

Fimmtudaginn 30. mars mætti Benjamin Mokry frá Klifurhúsinu í Reykjavík til Stykkishólms til að kynna íþróttakennara grunnskólans fyrir notkun á fallvarnarblökkum, sjálfvirkum búnaði sem tryggir öryggi klifrara í klifurveggnum sem staðsettur er í íþróttahúsinu við Borgarbraut. Búnaðurinn er gjöf frá fyrirtækjunum Agustson, Sæfelli og Þórsnesi. Arnar Hreiðarsson forstöðumaður íþróttamannvirkja sá svo um að koma búnaðinum…Lesa meira