Fréttir

true

Líkfundur sunnan við Borgarnes

Lík fannst í fjöruborðinu við Borgarfjörð, sunnan við Borgarnes, um miðjan dag í gær. Vegfarandi tilkynnti um líkfundinn og er málið nú til rannsóknar Lögreglunnar á Vesturlandi. „Við erum að vinna í þessu og þurfum að fá niðurstöðu þannig að með óyggjandi hætti sé hægt að staðfesta hver viðkomandi er. Svo þegar sú niðurstaða liggur…Lesa meira

true

Hopphjól komin á Snæfellsnes

Miðvikudaginn 5. apríl hóf rafskútuleigan SnæHopp ehf. starfsemi í Snæfellsbæ. Eigendur SnæHopps eru Friðþjófur Orri Jóhannsson, Lilja Hrund Jóhannsdóttir og Benedikt Gunnar Jensson sem öll búa í Snæfellsbæ. Um er að ræða samstarfsverkefni með rafskútuleigunni Hopp sem fyrir er með rafskútur í 15 sveitarfélögum á Íslandi. Segir Lilja Hrund í samtali við Skessuhorn að Snæhopp…Lesa meira

true

Sýningaropnun á Byggðasafninu í Görðum

Og svo henti lítið atvik Sýningin Og svo henti lítið atvik // And Then a Little Something Occurred verður opnuð á sunnudaginn klukkan 14 á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi og mun standa til 7. maí nk. Sýningin er hluti af útskriftarverkefni Söru Hjördísar Blöndal til meistaraprófs í sýningagerð við Listaháskóla Íslands. Sýningin samanstendur af…Lesa meira

true

FVA sigraði í FRÍS 2023

Úrslitaviðureignin í Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands, FRÍS, fór fram í gærkvöldi í Rafíþróttahöllinni Arena í Kópavogi og var sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Til úrslita léku lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) og Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FSu). Það var lið FVA sem fagnaði sigri í fyrsta skipti í þessari keppni en FVA tapaði fyrir…Lesa meira

true

Samkomulag undirritað um kynbótaverkefni á byggi

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í morgun samkomulag við Landbúnaðarháskóla Íslands um framkvæmd kynbótaverkefnis á byggi til ræktunar á Íslandi. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor undirritaði samkomulagið fyrir hönd Landbúnaðarháskólans sem gildir til eins árs. „Tækni í plöntukynbótum hefur fleygt fram á ljóshraða og við viljum nýta okkur þá möguleika til að hraða erfðaframförum svo um munar.…Lesa meira

true

Grundaskóli frumsýnir heimildamyndina Út fyrir rammann

Innan tíðar frumsýnir Grundaskóli á Akranesi heimildamynd um söngleikjagerð skólans í 20 ár og nefnist hún Út fyrir rammann. Í myndinni er meðal annars fjallað um ferlið í heild sinni og markmiðin með þessum verkefnum, áhrifin á nemendur og starfsfólk, rifjað upp skemmtilegar minningar og velt fyrir sér mikilvægi listrænna verkefna í íslensku skólakerfi. Fram…Lesa meira

true

Símenntun í hóp fyrirtækja á Smiðjuvöllum 28

Enn fjölgar þeim fyrirtækjum og stofnunum sem taka á leigu skrifstofu- og vinnurými í húsinu Smiðjuvöllum 28 á Akranesi. Leigutaki er Gísli Kristófersson hjá Línuvélum ehf. Þar hafa nú m.a. komið sér fyrir Fjöliðjan, Vinnumálastofnun, Verkís, Starfsendurhæfing Vesturlands og nú síðast Símenntun á Vesturlandi. Þá er verið að innrétta rými fyrir opinberar stofnanir í húsinu…Lesa meira

true

Samið um hönnun tveggja torgsvæða í Borgarnesi

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var ákveðið að taka tilboði fyrirtækisins Alternance um ráðgjöf og hönnun tveggja almenningsrýma í neðri bæ Borgarness. „Tekin verða fyrir tvö almenningsrými og ásinn á milli þeirra. Fyrra svæðið er nýtt miðbæjartorg og tenging milli Skallagrímsgarðs og Kveldúlfsvallar (Skallagrímstorg/Kveldúlfstorg). Seinna svæðið er almenningssvæði og torg við Brákarbraut norðan Brákareyjarbrúar…Lesa meira

true

Mest aukning umferðar í mars var um Vesturland

Umferðin heldur áfram að aukast mikið á Hringveginum umhverfis landið. Í samantekt Vegagerðarinnar kemur fram að umferð jókst um 13% í mars og hefur þá aukist verulega í öllum mánuðum þessa árs. Mest jókst umferðin um Vesturland í mars eða um 17,4%, en uppsafnað frá áramótum er aukningin 19,3%. Á Austurlandi varð tæplega 7% samdráttur…Lesa meira

true

Sameina þrjár kraftakeppnir í eina undir nafninu Víkingurinn

Ákveðið hefur verið að gera breytingar á þann veg að sameina kraftakeppnirnar Vestfjarðavíkinginn, Austfjarðatröllið og Norðurlands Jakann í eitt mót undir nafninu Víkingurinn. Fram kemur á vef Reykhólahrepps að aðal ástæðan fyrir þessari breytingu sé skortur á fjármagni, aukinn kostnaður og stytting á sýningartíma þátta í sjónvarpi. Sýningar á þáttunum hafa enn fremur dregist fram…Lesa meira