
Liðsmenn FVA voru hæstánægð með sigurinn. Ljósm. frís
FVA sigraði í FRÍS 2023
Úrslitaviðureignin í Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands, FRÍS, fór fram í gærkvöldi í Rafíþróttahöllinni Arena í Kópavogi og var sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Til úrslita léku lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) og Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FSu). Það var lið FVA sem fagnaði sigri í fyrsta skipti í þessari keppni en FVA tapaði fyrir Tækniskólanum í úrslitum í fyrra. Átta stigahæstu skólarnir komust áfram í úrslitakeppni FRÍS, FVA endaði með flest stig í lok undankeppninnar og voru því örugg áfram í úrslitakeppnina. FVA mættu fyrst MS í 8-liða úrslitum og sigruðu 3-0, þau mættu síðan FG í undanúrslitum og sigruðu 2-1 og að lokum mættu þau FSu í úrslitum og sigruðu þar 2-1.