Hopphjól komin á Snæfellsnes

Miðvikudaginn 5. apríl hóf rafskútuleigan SnæHopp ehf. starfsemi í Snæfellsbæ. Eigendur SnæHopps eru Friðþjófur Orri Jóhannsson, Lilja Hrund Jóhannsdóttir og Benedikt Gunnar Jensson sem öll búa í Snæfellsbæ. Um er að ræða samstarfsverkefni með rafskútuleigunni Hopp sem fyrir er með rafskútur í 15 sveitarfélögum á Íslandi. Segir Lilja Hrund í samtali við Skessuhorn að Snæhopp hafi fest kaup á 60 Hopp rafskútum og felist samstarfið í því að Snæhopp fái að nota vörumerki Hopp, sem þekkt er orðið á Íslandi, og Hopp Appið til þess að leigja út rafskúturnar. Nú er hægt að leigja sér Hopp rafskútu í Snæfellsbæ og hægt að fara á milli Hellissands, Rifs og Ólafsvíkur á slíkri skútu en þar er fyrir góður hjólastígur.

Hopphjól komin á Snæfellsnes - Skessuhorn