
Fjölskyldan frá vinstri: Ármann Bjarni Eyjólfsson, Auður Margrét Ármannsdóttir, Inger Elísabet Eyjólfsdóttir, Eyjólfur Magnússon og Trausti Leifur Eyjólfsson.
Tvær milljónir söfnuðust á styrktartónleikum fyrir Ármann Bjarna
Hinn tvítugi Ármann Bjarni Eyjólfsson lenti í vinnuslysi að morgni 17. febrúar síðastliðnum þegar þriggja tonna steypueining féll ofan á vinstri fót hans með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fótinn við miðjan legg. Ármann hefur verið í endurhæfingu á Grensásdeild síðan 15. mars og hefur nú þegar fengið nýjan fót og er kominn á ról.