
Jón Ragnar Daðason. Ljósm. gj.
Hinn raunverulegi þjóðararfur
Það er sólríkur dagur en kaldur þegar blaðamaður rennir inn Reitarveginn í Stykkishólmi til að leita uppi gömlu verbúðirnar. Þar er Jón Ragnar Daðason að finna, hann stendur á fertugu og er tréskipasmiður. Í framtíðinni verða þarna íbúðir og léttur iðnaður samkvæmt deiliskipulagi bæjarins. Verkstæði Jóns er í innstu verbúðinni. Þegar þangað er komið er snyrtimennska það fyrsta sem blaðamaður tekur eftir og nefnir að það sé nú ekki svona fínt í bílskúrnum hjá sér. „Ja ég er nýbúinn að sópa,“ segir Jón af hógværð sem á eftir að einkenna samtalið. Hann er komin á heimaslóðir og hann og kona hans Hera Guðlaugsdóttir kunna vel við sig í Hólminum.