
Guðrún Esther Jónsdóttir og Skúli Hreinn Guðbjörnsson, bændur í Miðskógi
Byggja upp kjúklingaeldi í Dölum í samstarfi við Reykjagarð
Bændurnir í Miðskógi í Dölum, Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Guðrún Esther Jónsdóttir, hafa undirritað samstarfssamning við Reykjagarð hf. um uppbyggingu kjúklingaeldis á jörð sinni. Í því felst að í Miðskógi verður byggt tæplega 900 fermetra eldishús þar sem alinn verður kjúklingur frá eins dags gömlum og þar til hann er fullvaxinn til slátrunar, um 35-37 daga gamall.