
Opinn flokkur í reið. Ljósm. Carolin Giese.
Páskatöltmót Dreyra fór fram á Æðarodda
Hestamannafélagið Dreyri hélt sitt árlega páskatöltmót mánudaginn 10. apríl á Æðarodda. Mótið var opið en keppt var alls í fimm flokkum og bárust um 40 skráningar. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur. Forkeppni hófst um kl. 10 um morguninn með stórsýningu pollaflokks þar sem þátttakendur mættu m.a. í ofurhetjubúningum. Keppni lauk síðan um miðjan dag með úrslitum í Opnum flokki.