Fréttir

true

Eldur kom upp í klæðningu í Kampi

Hratt var brugðist við þegar eldur kom upp í íbúðareiningu í gamla Kampus braggahverfinu á Miðsandi í Hvalfirði í morgun. Þar unnu iðnaðarmenn á vegum Hvals við endurbætur á húsinu sem notað er sem vistarverur starfsfólks hvalstöðvarinnar. Verið var að bræða tjörudúk á húsið utanvert þegar neisti hljóp í klæðningu. Áttuðu starfsmenn sig fljótt á…Lesa meira

true

MB setur upp söngleikinn Syngdu

Menntaskóli Borgarfjarðar setur nú upp söngleikinn Syngdu sem byggður er á teiknimyndinni Sing og fjallar um tilraun dýra til að bjarga leikhúsinu sínu með söngkeppni. Sýningin er samvinnuverkefni Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Leiklistarklúbbs MB og Menntaskóla Borgarfjarðar en nemendur MB og tíunda bekkjar Grunnskólans í Borgarnesi sóttu leiklistarnámskeið á vegum Leynileikhússins fyrir áramót til að vekja áhuga.…Lesa meira

true

Baldur siglir ekki í dag

Ferðir ferjunnar Baldurs milli Stykkishólms og Brjánslækjar í dag verða felldar niður vegna veðurs. Þetta kemur fram á Twitter-síðu Vegagerðarinnar. Þá er óvíst hvort ferjan sigli á morgun en staðan verður skoðuð í fyrramálið.Lesa meira

true

Samkomulag um þróun Loftslagsgarðs á Akranesi – 51 hektari eyrnamerktur verkefninu

Akraneskaupstaður og íslenska fyrirtækið Transition Labs hafa samþykkt að kanna grundvöll þess að ráðist verði í uppbyggingu svokallaðs Loftslagsgarðs, athafnasvæðis með þyrpingu fyrirtækja í loftslagstengdri starfsemi, í sveitarfélaginu. Bærinn mun taka frá landsvæði fyrir Loftslagsgarðinn sem Transition Labs hefur einkarétt á að nýta til ákveðins tíma á meðan deiliskipulag svæðisins er útfært og möguleikar eins…Lesa meira

true

Regus opnar fjarvinnuaðstöðu í Stykkishólmi

Samningar hafa náðst um að Regus opni nýja fjarvinnuaðstöðu við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi. Húsnæðið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka, en hefur síðastliðið ár verið heimili frumkvöðlasetursins Árnaseturs. Stefnt er að opnun aðstöðunnar í apríl. Það er fyrirtækið Sæfell sem er samstarfsaðili Regus en samningur um húsnæðið er til 15 ára. Regus…Lesa meira

true

Hefja kennslu í heyrnartækni næsta haust

Boðið verður upp á tækifæri til náms í heyrnartækni í fyrsta sinn hér á landi næsta haust, í samvinnu Heilbrigðisskóla Fjölbrautaskólans við Ármúla og SydDansk Erhvervsskole í Óðinsvéum. Mikil og vaxandi þörf er fyrir heyrnarfræðinga og sérhæft starfsfólk í heyrnartækni. Heilbrigðisráðuneytið fól því Landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu að skoða leiðir til að…Lesa meira

true

Stefnt er á að opna Búkollu að nýju í júní

Nytjamarkaðurinn Búkolla á Akranesi hefur verið lokaður frá því í maí á síðasta ári og hefur starfsemin legið í dvala síðan þá. Búkolla var til húsa á Vesturgötu 62 og var starfseminni lokað vegna slæmra loftgæða í húsinu. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að framkvæmdir á nýju húsnæði Búkollu, sem staðsett er á Smiðjuvöllum 9,…Lesa meira

true

Söngskemmtun með Diddú og Jónasi Þóri

Fimmtudaginn 23. mars mun Kalman listafélag standa fyrir tónleikum í Vinaminni á Akranesi. Þar munu hinir þjóðkunnu listamenn, Diddú og Jónas Þórir, mæta með skemmtilegt og fjörugt prógram við allra hæfi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Yfirskrift söngskemmtunarinnar er „Úr ýmsum áttum – eitthvað fyrir alla“ en Diddú og Jónas hafa starfað saman á vængjum söngsins…Lesa meira

true

Stuttri en góðri netavertíð lokið

Áhöfnin á bátnum Ólafi Bjarnasyni SH tók upp netin síðastliðinn laugardag. „Þar með lauk stuttri en góðri netavertíð,“ sagði Orri Freyr Magnússon skipstjóri í samtali við Skessuhorn. „Við fórum aðeins um 20 netaróðra frá janúar og var okkur skammtaður afli af þorski eða um 130 tonn af slægðum afla á mánuði. Aflinn var fljóttekinn enda…Lesa meira

true

Eðalfiskur og Norðanfiskur fyrirhuga starfsemi í Flóahverfi

Akraneskaupstaður og Brimilshólmi ehf., eitt dótturfélaga Eðalfangs, hafa undirritað samning um lóð í grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Eðalfang sér aðgang að lóðum sem eru yfir 2,4 hektari að stærð og hefur rétt til byggingar á um 13.000 fm. húsi. Lóðin er staðsett í matvælahluta grænna iðngarða og verður afhent Eðalfangi…Lesa meira