Við undirskrift samnings um lóð í Flóahverfinu. Aftari röð f.v: Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar, Inga Ósk Jónsdóttir stjórnarmaður hjá Eðalfiski, Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi, Einar Brandsson bæjarfulltrúi, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi, Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi, Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi og Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri hjá Akraneskaupstað. Fremri röð f.v. Andri Gunnarsson stjórnarformaður hjá Eðalfiski og Steinar D. Adolfsson sviðsstjóri hjá Akraneskaupstað. Ljósm. akranes.is

Eðalfiskur og Norðanfiskur fyrirhuga starfsemi í Flóahverfi

Akraneskaupstaður og Brimilshólmi ehf., eitt dótturfélaga Eðalfangs, hafa undirritað samning um lóð í grænum iðngörðum í Flóahverfi á Akranesi. Með samningnum tryggir Eðalfang sér aðgang að lóðum sem eru yfir 2,4 hektari að stærð og hefur rétt til byggingar á um 13.000 fm. húsi. Lóðin er staðsett í matvælahluta grænna iðngarða og verður afhent Eðalfangi til uppbyggingar árið 2024.

Eðalfiskur og Norðanfiskur fyrirhuga starfsemi í Flóahverfi - Skessuhorn