Fréttir

true

FVA tekur þátt í Íslandsmóti iðn- og verkgreina

Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í vikunni í Laugardalshöllinni í Reykjavík og stendur yfir frá fimmtudegi til laugardags. „Mín framtíð“ er yfirskrift viðburðarins en einnig verður í gangi kynning á framhaldsskólum landsins. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi verður með glæsilegan bás á svæðinu. Unnur Jónsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði kynningarefni fyrir skólann og stendur hópur nemenda…Lesa meira

true

Grunnskólarnir í Borgarfirði völdu fulltrúa í SamVest

Undanfarnar vikur hafa söngkeppnir farið fram í grunnskólum á Vesturlandi þar sem fulltrúar hvers skóla hafa verið valdir til að keppa í söngkeppni SamVest. SamVest er undankeppni skóla á Vesturlandi fyrir Söngkeppni Samfés sem fram mun fara í Reykjavík 6. maí næstkomandi. SamVest verður í ár haldið í Búðardal á fimmtudaginn næsta, 16. mars. Sameiginleg…Lesa meira

true

Sótt um að byggja þúsund fermetra íbúðarhús og aðeins minna gestahús

Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Skorradalshrepps 1. febrúar síðastliðinn var samþykkt að veita byggingarleyfi fyrir væntanlegt íbúðarhús og gestahús í landi Horns í Skorradal. Stærð væntanlegra húsa vekur óneitanlega athygli. Sótt er um að byggja 992 fermetra íbúðarhús og 722,6 fermetra gestahús. Eigendaskipti urðu að jörðinni síðastliðið vor eftir að Árni Hjörleifsson bóndi á Horni og fyrrverandi…Lesa meira

true

Álftanes komið í Subway deildina eftir sigur á Skallagrími

Álftanes og Skallagrímur áttust við á Álftanesi í gærkvöldi og með sigri gátu heimamenn tryggt sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Heimamenn virtust yfirspenntir og smá taugaveiklaðir í byrjun leiks því Skallagrímur komst í 4:9 eftir tæpan tveggja mínútna leik. Álftanes náði þó fljótlega áttum og staðan 15:15 um miðbik…Lesa meira

true

200 milljónir króna til frjálsra félagasamtaka

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra veitti í gær styrki til verkefna á sviði félags- og velferðarmála. Alls var 41 styrkur veittur. Þ.e. 20 verkefnastyrkir og 21 rekstrarstyrkur og nam heildarfjárhæðin um 200 milljónum króna. Úthlutunin fór fram á Reykjavík Natura og voru tveir valdir styrkþegar fengnir til að kynna sín verkefni. Sorgarmiðstöðin kynnti verkefnið…Lesa meira

true

Uppskipun á salti í frostinu

Flutningaskipið Hagland Pioneer lagðist að bryggju í Grundarfirði skömmu eftir hádegið í gær. Þá var hafist handa við að skipa upp 1.900 tonnum af salti í saltgeymsluna við höfnina. Unnið var fram á kvöld til að koma farminum í hús og ekki slegið slöku við. Það voru starfsmenn frá flutningafyrirtækinu Ragnari og Ásgeiri sem sáu…Lesa meira

true

Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst í febrúar

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 26,5 milljörðum króna í febrúar samkvæmt fyrstu bráðabirgðartölum sem Hagstofan birti í síðustu viku. Í Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, segir að þetta sé rúmlega 14% aukning í krónum talið miðað við febrúar í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var tæplega 7% veikara í febrúar en í sama mánuði í fyrra er aukningin nokkuð…Lesa meira

true

Byssusýning á Veiðisafninu Stokkseyri um helgina

Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður í ár haldin í samvinnu við verslunina Veiðihornið og Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness. Sýningin verður laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins. Félagsmenn úr Skotgrund – Skotfélagi Snæfellsness verða með fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis ásamt kynningu á starfsemi skotfélagsins. Kennir þar ýmissa grasa og…Lesa meira

true

Vörumiðlun kaupir flutningafyrirtæki Júlla Jóns

Gengið hefur verið frá kaupum á flutningafyrirtæki Júlíusar Jónssonar í Borgarnesi. Kaupandinn er Vörumiðlun, dótturfyrirtæki KS. Júlíus staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Hann segir að búið sé að handsala kaupin en formlega gangi salan í gegn um næstu mánaðamót. Vörumiðlun mun áfram reka starfsstöð í Borgarnesi en hún er til húsa í Engjaási, og…Lesa meira

true

Fimm Akranesmet hjá sundmönnum ÍA um helgina

Tólf sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt á Ásvallamóti Sundfélags Hafnarfjarðar um helgina. Mótinu lauk á sunnudag en alls tóku 240 keppendur frá 15 félögum þátt. Sundfólk ÍA stóð sig mjög vel. Eitt gull, átta silfur og fjögur brons var niðurstaðan hjá sundfólkinu. Akranesmet var sett í 4×50 metra fjórsundi, blandaðri sveit en hana skipuðu…Lesa meira