Fréttir

true

Fimm Akranesmet hjá sundmönnum ÍA um helgina

Tólf sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt á Ásvallamóti Sundfélags Hafnarfjarðar um helgina. Mótinu lauk á sunnudag en alls tóku 240 keppendur frá 15 félögum þátt. Sundfólk ÍA stóð sig mjög vel. Eitt gull, átta silfur og fjögur brons var niðurstaðan hjá sundfólkinu. Akranesmet var sett í 4×50 metra fjórsundi, blandaðri sveit en hana skipuðu…Lesa meira

true

Guðrún Hildur kosin formaður UMSB

Ársþing Ungmennasambands Borgarfjarðar var haldið í síðustu viku. Í frétt á síðu UMFÍ kemur fram að eitt og annað hafi verið gert á þinginu. Þar tók Guðrún Hildur Þórðardóttir við sem sambandsstjóri UMSB og tekur sæti Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur. Guðrún var áður varasambandsstjóri en Sonja hefur verið sambandsstjóri undanfarin tvö ár. Ólafur Daði Birgisson…Lesa meira

true

Endurbygging C-álmu Grundaskóla komin á fullt og kennslustofum fjölgar

Nú vinna iðnaðarmenn kappsamlega að því að koma nýjum kennslustofum í notkun við Grundaskóla á Akranesi. Aðstaða fyrir list- og verkgreinar er að komast í gagnið á Grundaseli og nú á einungis eftir að ljúka við aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Kennarar í tónlist, myndlist og textíl hafa lokið flutningum. Frístundin er einnig á síðustu metrum flutninga…Lesa meira

true

Matsferill í stað samræmdra prófa

Matsferill er nýtt fyrirhugað námsmat fyrir grunnskóla landsins sem kemur í stað samræmdra könnunarprófa. „Því er ætlað að vera öflugt verkfæri fyrir skólana til að leggja mat á kunnáttu, leikni og hæfni nemenda á fjölbreyttan og einstaklingsmiðaðan hátt,“ segir í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Nú hefur verið mörkuð stefnu við gerð matferils og kallar…Lesa meira

true

Vegstikur þaktar aur en búið að hreinsa veginn

Á undanförnum vikum hefur talsvert verið kvartað til lögreglu um aur á þjóðveginum sunnan- og vestan við Akrafjall. Í úrkomutíð var vegurinn beinlínis háll vegna þess að lag af blautum leir hefur legið á veginum, en í þurrkum og frosti hefur rykið svo þyrlast upp. Gríðarlega mikil umferð vörubíla er úr og í malarnámurnar á…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir SR í Lengjubikarnum

Skallagrímur tók á móti Skautafélagi Reykjavíkur í riðli 4 í C deild Lengjubikars karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn í Akraneshöllinni. Gestirnir komust yfir með marki frá Luis Cabambe á 41. mínútu og þannig var staðan í hálfleik, 0-1 fyrir SR. Það var aldeilis fjör í seinni hálfleik og alls voru skoruð sex…Lesa meira

true

Rætt um menningu og skapandi greinar á Bifröst – myndasyrpa

Um helgina var fundur á Bifröst um áhrif menningar og skapandi greina á samfélög, nýsköpun og hagvöxt. Fundurinn var haldinn á vegum Háskólans á Bifröst og var hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni um staðbundin áhrif menningar í dreifbýli. IN SITU Vesturland er eitt af sex tilraunasvæðum Evrópurannsóknar sem ber heitið IN SITU sem í snarþýðingu mætti…Lesa meira

true

Kynna úttekt um bætta dýravelferð

Á morgun, þriðjudaginn 14. mars verður úttekt á vegum Dýraverndarsambands Íslands kynnt opinberlega á málþingi í Öskju í HÍ. Í úttektinni eru gerðar tillögur um bætt eftirlit með dýravelferð á Íslandi. Í skýrslunni birtist ríkt vantraust almennings gagnvart núverandi fyrirkomulagi og er þar bent á leiðir til úrbóta, en skýrsluhöfundur er Ágúst Ólafur Ágústsson, lögfræðingur…Lesa meira

true

Breytingar lagðar til á regluverki Jöfnunarsjóðs

Sveitarfélög sem ekki leggja á hámarksútsvar fá skerðingar úr sjóðnum Gagngerar breytingar verða gerðar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði frumvarp sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda samþykkt. Miða þær að því að styrkja jöfnunarhlutverk sjóðsins og mæta miklum breytingum sem hafa orðið í samfélaginu. Í samráðsgátt eru hvort tveggja til umsagnar drög að skýrslu…Lesa meira

true

Loðnuveiðar í kappi við tímann

Hrognafylling í loðnu er nú orðin mjög góð og unnið á sólarhringsvöktum á öllum vinnslustöðvum umhverfis landið við að frysta hrognin fyrir Asíumarkað. Einungis tímaspursmál er hvenær loðnan gengur inn til hrygningar, en þá verður draumurinn úti. Á meðfylgjandi mynd sem Guðmundur St. Valdimarsson skipverji á varðskipinu Freyju tók á miðunum í gær, voru loðnuskipin…Lesa meira