
Kynna úttekt um bætta dýravelferð
Á morgun, þriðjudaginn 14. mars verður úttekt á vegum Dýraverndarsambands Íslands kynnt opinberlega á málþingi í Öskju í HÍ. Í úttektinni eru gerðar tillögur um bætt eftirlit með dýravelferð á Íslandi.
Í skýrslunni birtist ríkt vantraust almennings gagnvart núverandi fyrirkomulagi og er þar bent á leiðir til úrbóta, en skýrsluhöfundur er Ágúst Ólafur Ágústsson, lögfræðingur og hagfræðingur. Fram kemur að yfir 5.000 ábendingar um grun um illa meðferð á dýrum bárust Matvælastofnun á síðustu níu árum. Alls lagði MAST til að 224 dýravelferðarmálum yrði lokið með sekt, vörslusviptingu eða kæru á sjö ára tímabili en um helmingur þeirra mála var felldur niður.
Þá kemur einnig fram í skýrslunni að framlag ríkisins til MAST hefur lækkað að raunvirði á undanförnum árum og helmingi færri stöðugildi sinna nú eftirliti með búfénaði en áður var.
Í skýrslunni eru m.a. lagðar fram eftirfarandi tillögur:
-Aðskilja málefni dýravelferðar frá annarri starfsemi MAST og setja á fót nýja stofnun,
Dýravelferðarstofu Íslands sem heyri undir umhverfisráðuneyti í stað matvælaráðuneytis.
-Leyfisskylda allt búfjárhald.
-Stórauka upplýsingagjöf um meðferð mála.
-Setja á fót „dýraathvarf“ þannig að hægt sé að tryggja aðbúnað þeirra dýra sem hafa verið
tekin úr umsjá umráðamanns. Nú eru vörslusvipt dýr allt of oft aflífuð þar sem úrræði vantar.
-Tryggja skilvirka og skjóta verkferla og auka málshraða.
-Auka valdheimildir nýrrar Dýravelferðarstofu og tryggja hlutleysi hennar.
-Tryggja að þeir aðilar sem gerast brotlegir við dýravelferð missi opinberan stuðning við
búrekstur sinn.
-Efla stuðning og samvinnu við félög sem vinna að velferð dýra og veita opinberum aðilum
aðhald.
Úttektin verður kynnt á morgun, í Öskju klukkan 17:00 og er allt áhugafólk um velferð dýra hjartanlega velkomið.