Vegstikur á þjóðveginum sunnan við Akrafjall gera ekkert gagn óhreinsaðar.

Vegstikur þaktar aur en búið að hreinsa veginn

Á undanförnum vikum hefur talsvert verið kvartað til lögreglu um aur á þjóðveginum sunnan- og vestan við Akrafjall. Í úrkomutíð var vegurinn beinlínis háll vegna þess að lag af blautum leir hefur legið á veginum, en í þurrkum og frosti hefur rykið svo þyrlast upp. Gríðarlega mikil umferð vörubíla er úr og í malarnámurnar á Hólabrú en sömuleiðis í moldartipp norðan við munna Hvalfjarðarganga þangað sem ekið er með mold úr gatnaframkvæmdum á Akranesi. Eins og kom fram í síðasta Skessuhorni hefur lögreglan farið á svæðið og rætt við verktaka. Þeir hafa í kjölfarið sent vélsópa og látið hreinsa veginn sem er þokkalega hreinn núna. Vegstikur á þjóðveginum í kringum vinnusvæðin hafa hins vegar ekki fengið slíka hreinsun og eru nú svartar af aur. Vegfarandi sem þar átti leið í gærkvöldi hafði samband við ritstjórn Skessuhorns og vildi koma á framfæri ábendingu um hættuna sem skapast þegar vegstikur eru ekki hreinsaðar.

Moldartippur norðan við munna Hvalfjarðarganga.
Vörubíll á leið á vigtina við afleggjarann að Hólabrú.
Vegstikur þaktar aur en búið að hreinsa veginn - Skessuhorn