Fréttir

true

Hífandi rok er komið var til hafnar

Það blés hressilega að sunnan þegar trillan Vinur SH og netabáturinn Jökull ÞH komu til hafnar í Grundarfirði síðasta mánudag. Það hefur verið ansi vindasöm tíðin undanfarnar vikur og þar af leiðandi meira krefjandi aðstæður á sjó. Jökull ÞH 299 er á netaveiðum á Breiðafirði og kemur til hafnar í Grundarfirði á meðan. Vinur SH…Lesa meira

true

Gluggað í gamlar myndir

Undanfarna fimmtudaga hefur Ragnar Jónsson frá Héraðsskjalasafninu á Akranesi mætt með gamlar ljósmyndir úr fórum safnsins og sýnt þær á stórum sjónvarpsskjá á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða. Þangað er íbúum og fólki sem er í dagvistun boðið að koma. Sýndar eru myndir af fólki, viðburðum, byggingum og öðru myndefni frá fyrri tíð. Eldra fólk þekkir…Lesa meira

true

Feðgar verða ekki ákærðir

Fréttavefur RÚV greinir frá þeim málalyktum að enginn verður ákærður í tengslum við skotárásina á Blönduósi í lok ágúst á síðasta ári. Feðgar höfðu réttarstöðu sakbornings í málinu, en héraðssaksóknari hefur ákveðið að fella málið niður á grundvelli neyðarvarnar. Kona á sextugsaldri lét lífið í árásinni sem og árásarmaðurinn. Þá særðist húsráðandi alvarlega í árásinni…Lesa meira

true

Æsileg eftirför lögreglu

Seinni part þriðjudags í liðinni viku fékk lögregla tilkynningu frá fjarskiptamiðstöð um ofsaakstur bifreiðar í Hvalfjarðargöngum. Lögreglan fór að þeim norðan megin. Sáu þeir bifreiðina koma upp úr göngunum og veittu henni eftirför áleiðis á Akranes. Gáfu þeir merki með forgangsljósum að stöðva aksturinn en ökumaðurinn skeytti engu um það og jók bara ferðina. Lögreglan…Lesa meira

true

Verkföllum frestað meðan kosið verður um nýja miðlunartillögu

Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari kynnti á fréttamannafundi í morgun samkomulag atvinnurekenda og Eflingar um að slá á frest verkfalli og verkbanni þar til kosið hefur verið um nýja miðlunartillögu til lausnar kjaradeilunni. Tillagan mun nú ganga til afgreiðslu bæði hjá Samtökum atvinnulífsins og Eflingu. Atkvæði verða greidd rafrænt á vef sáttasemjara og hefst atkvæðagreiðsla næstkomandi…Lesa meira

true

Smiðirnir báru sigur úr býtum í aðalsveitakeppni BB

Síðastliðið mánudagskvöld lauk fjögurra kvölda aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar. Úrslit voru mjög afgerandi í efsta sætinu, en Smiðirnir sigruðu með 122,8 stigum. Sveitina skipuðu þeir Sigurjón Karlsson, Kristján Hallgrímsson, Brynjólfur Guðmundsson, Eyjólfur Kristinn Örnólfsson, Lárus Pétursson og Sveinn Símonarson. Þeir Lárus og Eyjólfur Kristinn voru jafnframt hæstir í Bötler, áttu besta skor para í keppninni. Í…Lesa meira

true

Þurfum að stórbæta keppnis- og félagsaðstöðu okkar

Rætt við Eggert Hjelm Herbertsson sem áfram verður í forystu fyrir Knattspyrnufélag ÍA Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA fór fram 20. febrúar síðastliðinn að Jaðarsbökkum. Fimm nýir stjórnarmenn voru kosnir en formaður félagsins, Eggert Hjelm Herbertsson, var endurkjörinn. Nýir í stjórn eru Ingimar Elí Hlynsson, Jóhannes H. Smárason, Ellert Jón Björnsson, Freydís Bjarnadóttir og Sigurður Þór Sigursteinsson.…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður tryggir fjármögnun verkefna

Íslandsbanki og Akraneskaupstaður hafa undirritað lánasamning vegna brúarfjármögnunar fyrir allt að þremur milljörðum króna og er samningurinn til tveggja ára. Átti Íslandsbanki hagstæðasta tilboðið. Í frétt á heimasíðu kaupstaðarins segir að miklar fjárfestingar og framkvæmdir séu framundan næstu árin hjá Akraneskaupstað sem kalla á frekari lántöku en áætlað er að setja um 2,6 milljarða kr.…Lesa meira

true

Háskóladagurinn er framundan

Háskóladagurinn 2023 verður haldinn laugardaginn 4. mars næstkomandi milli klukkan 12 og 15. Allir háskólar landsins munu þá kynna starfsemi sína. Dagurinn fer fram í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Háskóla Íslands og Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni. Minnt er á vefinn www.haskoladagurinn.is – þar er öflug leitarvél þar sem nemendur geta fundið draumanámið og…Lesa meira

true

Ný sýning hefur verið opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar

Hvað ungur nemur gamall temur er yfirskrift sýningar sem opnuð var í Safnahúsi Borgarfjarðar síðastliðinn föstudag. Um er að ræða samstarf Safnahússins og Grunnskólans í Borgarnesi en sýningarstjóri er Anna Sigríður Guðbrandsdóttir myndmenntakennari við skólann. Hún segir sýninguna tilraun til að mynda brú á milli tveggja hópa skapandi fólks, þ.e. myndlistarfólks og ungmenna. Til sýnis…Lesa meira