
Við undirskrift. F.v. Kristjana H. Ólafsdóttir, deildarstjóri fjármála hjá Akraneskaupstað, Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabanka Íslandsbanka, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi og Magnús Brandsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Akranesi. Ljósm. af akranes.is
Akraneskaupstaður tryggir fjármögnun verkefna
Íslandsbanki og Akraneskaupstaður hafa undirritað lánasamning vegna brúarfjármögnunar fyrir allt að þremur milljörðum króna og er samningurinn til tveggja ára. Átti Íslandsbanki hagstæðasta tilboðið. Í frétt á heimasíðu kaupstaðarins segir að miklar fjárfestingar og framkvæmdir séu framundan næstu árin hjá Akraneskaupstað sem kalla á frekari lántöku en áætlað er að setja um 2,6 milljarða kr. í fjárfestingar á árinu 2023 og á næstu fjórum árum er fyrirhugað að fjárfesta fyrir 9,4 milljarða. Brúarfjármögnunin er mikilvægur þáttur í að framkvæmdir gangi skjótt fyrir sig þar sem fjármagn er tryggt til næstu tveggja ára. Nú í febrúar var dregið á fyrstu lánafyrirgreiðsluna þegar 250 milljónir króna voru teknar að láni.