Ljósmyndari Skessuhorns leið við á höfða. Ljósm. ki

Gluggað í gamlar myndir

Undanfarna fimmtudaga hefur Ragnar Jónsson frá Héraðsskjalasafninu á Akranesi mætt með gamlar ljósmyndir úr fórum safnsins og sýnt þær á stórum sjónvarpsskjá á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða. Þangað er íbúum og fólki sem er í dagvistun boðið að koma. Sýndar eru myndir af fólki, viðburðum, byggingum og öðru myndefni frá fyrri tíð. Eldra fólk þekkir gjarnan fólk og staðhætti á gömlum ljósmyndum og er það hlutverk Ragnars að skrá þær upplýsingar sem ítarefni við myndirnar. Þar með eykst gildi þeirra sem heimild um liðna tíð komandi kynslóðum til gagns. Verkefni þessu hefur verið afar vel tekið og eins og sjá má voru margir sem tóku þátt síðastliðinn fimmtudag þegar ljósmyndari Skessuhorns leit við á Höfða.

Gluggað í gamlar myndir - Skessuhorn