
Stigarými Safnahússins er vel skreytt. Ljósm. sþ
Ný sýning hefur verið opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar
Hvað ungur nemur gamall temur er yfirskrift sýningar sem opnuð var í Safnahúsi Borgarfjarðar síðastliðinn föstudag. Um er að ræða samstarf Safnahússins og Grunnskólans í Borgarnesi en sýningarstjóri er Anna Sigríður Guðbrandsdóttir myndmenntakennari við skólann. Hún segir sýninguna tilraun til að mynda brú á milli tveggja hópa skapandi fólks, þ.e. myndlistarfólks og ungmenna. Til sýnis eru listaverk sem eru í eigu Safnahússins en grunnskólanemendur setja sinn blæ á sýninguna með eigin listaverkum.