
Í tilkynningu frá Matvælastofnun síðastliðinn föstudag kemur fram að 22. febrúar síðastliðinn hafi stofnunin fengið ábendingu vegna hrossahalds á höfuðborgarsvæðinu. „Eftirlit var framkvæmt samdægurs þar sem fram komu frávik við umhirðu hrossanna og aðbúnað. Stofnunin gerði í kjölfarið tímasettar kröfur um úrbætur, þar með talið kröfu um sérstaka umönnun á einu hrossanna. Matvælastofnun mun fylgja…Lesa meira







