Fréttir

true

Mesti arður frá upphafi af rekstri Landsvirkjunar

Búið er að birta ársuppgjör Landsvirkjunar. Þar kemur m.a. fram að stjórn fyrirtækisins ætlar að leggja til 20 milljarða króna arðgreiðslu í ríkissjóð, en á síðasta ári nam arðurinn 15 milljörðum kr. Afkoma þessa orkufyrirtækis þjóðarinnar hefur aldrei í 58 ára sögu þess verið betri. „Þennan árangur má einkum rekja til skýrra rekstrarmarkmiða og endursamninga…Lesa meira

true

Fimmti sigur Skallagríms í röð

Fjölnir og Skallagrímur mættust í 1. deild karla í körfuknattleik síðasta föstudagskvöld og var leikurinn í Dalhúsum í Grafarvogi. Fjölnir hafði unnið síðustu þrjá leiki sína í deildinni og Skallagrímur fjóra þannig að ljóst var að um hörkuleik yrði að ræða. Fyrsti leikhluti bauð upp á mikla baráttu þar sem liðin skiptust á að ná…Lesa meira

true

Njálsbrennusaga og Flugumýrartvist

Það er sérstök tilfinning að lifa sig inn í atburði Þjóðveldisaldar eins og gestir Sögulofts Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi hafa mikið gert af síðustu sautján árin. Þar er hægt að njóta og fræðast um íslenskar bókmenntir, gamanmál jafnt sem örlagaþrungnar frásagnir. Íslendingasögurnar hafa fengið veglegan sess í flutningi fólks eins og Benedikts Erlingssonar, Brynhildar Guðjónsdóttur…Lesa meira

true

Baski í viðgerðum í Innri-Hólmskirkju

Listamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, hefur undanfarnar vikur verið að vinna innan dyra í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit. Þessa stundina er hann að gera við skreytingu á innanverðum gafli kirkjunnar en skreytingin er orðin mjög gömul og er hann að færa hana aftur í gamla formið. Baski segir að litirnir í henni hafi allir gufað upp…Lesa meira

true

Litlu mátti muna að Ólafsdalsá myndi rjúfa veginn

Eins og við höfum greint hér frá á síðustu dögum hafa miklir vatnavextir verið í ám og lækjum víðs vegar um vestanvert landið. Þeir héldu svo áfram þegar leið á vikuna. Meðfylgjandi er mynd af Ólafsdalsá í Gilsfirði. Litlu mátti muna að áin næði að rjúfa veginn að Ólafsdal, en hér er unnið að lagfæringum.Lesa meira

true

Skagamenn skelltu toppliðinu óvænt

ÍA og Hamar áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Fyrir leik sátu Skagamenn í níunda sæti deildarinnar með 12 stig en lið Hamars í toppsætinu ásamt Álftanesi með 34 stig og ljóst að við ramman reip yrði að draga hjá heimamönnum…Lesa meira

true

Kvenháhyrningur með grindhvalakálf í fóstri – Myndband

Í ágústmánuði 2021 sást háhyrningur við Snæfellsnes annast um kálf annarrar tegundar, en ekki er vitað til þess að slíkt hafi áður gerst, eða í það minnsta verið skráð. Frá þessu er greint í nýrri vísindagrein frá Náttúrustofu Vesturlands sem Marie Mrusczok er aðalhöfundur að. Kvenháhyrningurinn sem um ræðir, sem nefnd er Sædís og ber…Lesa meira

true

Kári vann stórsigur en Víkingur Ó. tapaði

Kári og Víkingur Ólafsvík léku um helgina fyrstu leikina sína í riðli 1 í B deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Kári lék á föstudaginn gegn liði KV í Akraneshöllinni og byrjuðu af krafti því Sveinn Svavar Hallgrímsson kom þeim yfir strax á fyrstu mínútu. Fylkir Jóhannsson skoraði síðan mark úr víti eftir rúmlega hálftíma…Lesa meira

true

ÍA tapaði á móti Val í Lengjubikarnum – MYNDBAND

ÍA og Valur mættust í annarri umferð í riðli 1 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í hádeginu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Valsmenn komust yfir í leiknum eftir tæpan hálftíma með marki frá Sigurði Agli Lárussyni og þannig var staðan í hálfleik. Á 71. mínútu fékk Valsarinn Aron Jóhannsson rautt…Lesa meira

true

Rjúfa þurfti þjóðveginn til að koma fyrir nýju ræsi

Síðastliðinn föstudag var Stykkishólmsvegur tekinn í sundur vegna vatnavaxta ofan við kirkjugarð, milli Fákaborgar og Hamraenda. Vegurinn var grafinn í sundur svo hægt væri að endurnýja rör sem hafði fallið saman og hleypa þannig vatninu sína leið. Hjáleið var gerð um Arnarborg og Nýrækt á meðan á framkvæmdum stóð.Lesa meira