Fréttir

true

Sorg og sorgarviðbrögð, fræðslukvöld og stuðningshópur

Næstkomandi mánudagskvöld, 27. febrúar, verður fræðslukvöld í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi, um sorg og sorgarviðbrögð. Prestar Garða- og Saurbæjarprestakalls halda þar erindi um sorg og áföll og leiða samtal um viðfangsefnið. Í framhaldinu verður boðið upp á stuðningshóp fyrir syrgjendur. „Þetta er nýjung hjá okkur í Garða- og Saurbæjarprestakalli að bjóða upp á fræðslukvöld einu…Lesa meira

true

Útiloka endurgerð Árnahúss á núverandi lóð

Eins og fram kom í frétt Skessuhorn nýverið hefur bæjarráð Akraneskaupstaðar lýst vilja til að Árnahús við Höfða verði endurbyggð, þ.e. gamalt íbúðarhús og gripahús. Það verk yrði mögulega unnið í samvinnu við Minjastofnun Íslands. Tekið var fram í ályktun bæjarráðs að framkvæmdinni yrði háttað þannig að það hindraði ekki möguleikann á stækkun Höfða, hjúkrunar-…Lesa meira

true

Fyrsta mótið í nýrri reiðhöll Dreyra

Síðastliðinn fimmtudag fór fyrsta vetrarmót Dreyra fram í nýrri reiðhöll hestamannafélagsins á Akranesi en innan vébanda félagsins eru hestamenn á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Formleg vígsla á reiðhöllinni hefur ekki farið fram en í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir innanhúss. Stefnt er að vígslu hússins á afmæli félagsins 1. maí nk. Keppt var í tölti…Lesa meira

true

Kallað eftir nemendaverkefnum fyrir Varðliða umhverfisins

Varðliðar umhverfisins, verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10. bekk er nú hafin í 16. sinn. Samkeppninni er ætlað að hvetja börn og unglinga til góðra verka í umhverfisvernd og gefa rödd þeirra, sýn og hugmyndum um umhverfismál aukið vægi. Skilafrestur verkefna er 20. mars 2023. Samkeppnin er hvatning fyrir nemendur og kennara til að huga…Lesa meira

true

Segir Staðarfell bjóða upp á endalausa möguleika

Líkt og Skessuhorn greindi frá í síðustu viku hefur félagið V69 ehf. keypt húsakost á Staðarfelli II á Fellsströnd í Dölum af ríkissjóði. Skráður eigandi að félaginu er Baldur Ingvarsson sem einnig er framkvæmdastjóri Viðskiptavits ehf. Baldur segir í samtali við Skessuhorn að V69 ehf. sé fasteignafélag sem fjárfesti í atvinnuhúsnæði af ýmsum toga. „Staðarfell…Lesa meira

true

Grillhúsið merkir Digranesgötu 4 og undirbýr flutning

Á utanverðu húsinu við Digranesgötu 4 í Borgarnesi hafa merkingar Grillhússins undanfarið verið að birtast, en ísbúðin Huppa er einnig þar til húsa. Grillhúsið hefur síðan 2015 verið með veitingarekstur að Brúartorgi 6 en hyggst nú flytja rekstur sinn um set í stærra rými. Framkvæmdir hafa staðið yfir í vetur og samkvæmt heimildum Skessuhorns mun…Lesa meira

true

Fundur ungmennaráðs með sveitarstjórn Borgarbyggðar

Síðastliðinn fimmtudag fór fram fyrsti formlegi sveitarstjórnarfundur unga fólksins í Borgarbyggð, en um var að ræða sameiginlegan fund sveitarstjórnar og ungmennaráðs. Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að umræður hafi í senn verið líflegar, gagnlegar og skemmtilegar en ýmis mál og málefni er snerta ungmenni Borgarbyggðar voru á dagskrá að þessu sinni. Ungmennaráðið hafði dagskrárvald á…Lesa meira

true

Lífsins gangur nefnast næstu tónleikar í Vinaminni

Hanna Dóra Sturludóttir messósópransöngkona og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari koma fram á næstu tónleikum Kalman listafélags í Vinaminni á Akranesi fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20. Á efnisskrá eru lög og aríur úr ýmsum áttum. Efnistökin eru lífið; ástir, draumar og söknuður í lífi hvers manns. Titill tónleikanna, „Lífsins gangur“ á því vel við enda fengin…Lesa meira

true

Grundarfjörður er kominn í úrslit í Krakkakvissi

Fyrri viðureignin í undanúrslitum í Krakkakvissi var sýnd á Stöð 2 síðasta laugardagskvöld. Þar áttust við Grundarfjörður og ÍBV og mátti búast við spennandi keppni því í öllum þáttum átta liða úrslitanna réðust úrslitin á síðustu spurningunni. Lið Grundarfjarðar er skipað þeim Kristu Rún Þrastardóttur, Hauki Orra Heiðarssyni og Hans Bjarna Sigurbjörnssyni. Þau eru öll…Lesa meira

true

Hundrað og þrjátíu nemendur voru brautskráðir um helgina

Blað var brotið í sögu Háskólans á Bifröst síðastliðinn laugardag þegar fyrsti árgangurinn í áfallastjórnun var brautskráður frá skólanum. Þá var einnig veitt fyrsta BA gráðan í skapandi greinum. Aldrei hafa fleiri nemendur verið skráðir til náms við háskólann, en þeir eru nú á ellefta hundraðið. Útskriftarathöfnin fór fram í Hriflu, aðalsal háskólans og voru…Lesa meira