
Lífsins gangur nefnast næstu tónleikar í Vinaminni
Hanna Dóra Sturludóttir messósópransöngkona og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari koma fram á næstu tónleikum Kalman listafélags í Vinaminni á Akranesi fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20. Á efnisskrá eru lög og aríur úr ýmsum áttum. Efnistökin eru lífið; ástir, draumar og söknuður í lífi hvers manns. Titill tónleikanna, „Lífsins gangur“ á því vel við enda fengin að láni úr einu ljóðanna.