
Hér er fyrsti árgangurinn sem útskrifast úr áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst. Ljósm. James Einar Becker.
Hundrað og þrjátíu nemendur voru brautskráðir um helgina
Blað var brotið í sögu Háskólans á Bifröst síðastliðinn laugardag þegar fyrsti árgangurinn í áfallastjórnun var brautskráður frá skólanum. Þá var einnig veitt fyrsta BA gráðan í skapandi greinum. Aldrei hafa fleiri nemendur verið skráðir til náms við háskólann, en þeir eru nú á ellefta hundraðið.