Krista, Haukur og Hans eru komin í úrslit í Krakkakvissi. Skjámynd af Stöð 2.

Grundarfjörður er kominn í úrslit í Krakkakvissi

Fyrri viðureignin í undanúrslitum í Krakkakvissi var sýnd á Stöð 2 síðasta laugardagskvöld. Þar áttust við Grundarfjörður og ÍBV og mátti búast við spennandi keppni því í öllum þáttum átta liða úrslitanna réðust úrslitin á síðustu spurningunni. Lið Grundarfjarðar er skipað þeim Kristu Rún Þrastardóttur, Hauki Orra Heiðarssyni og Hans Bjarna Sigurbjörnssyni. Þau eru öll nemendur í Grunnskóla Grundarfjarðar og eru fædd 2010 og 2011.

Grundarfjörður er kominn í úrslit í Krakkakvissi - Skessuhorn