
Njálsbrennusaga og Flugumýrartvist
Það er sérstök tilfinning að lifa sig inn í atburði Þjóðveldisaldar eins og gestir Sögulofts Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi hafa mikið gert af síðustu sautján árin. Þar er hægt að njóta og fræðast um íslenskar bókmenntir, gamanmál jafnt sem örlagaþrungnar frásagnir. Íslendingasögurnar hafa fengið veglegan sess í flutningi fólks eins og Benedikts Erlingssonar, Brynhildar Guðjónsdóttur og Einars Kárasonar. Það var sá síðastnefndi sem bar Njálu á borð fyrir fullt hús gesta laugardagskvöldið 18. febrúar síðastliðinn.