
Baski í viðgerðum í Innri-Hólmskirkju
Listamaðurinn Bjarni Skúli Ketilsson, Baski, hefur undanfarnar vikur verið að vinna innan dyra í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit. Þessa stundina er hann að gera við skreytingu á innanverðum gafli kirkjunnar en skreytingin er orðin mjög gömul og er hann að færa hana aftur í gamla formið. Baski segir að litirnir í henni hafi allir gufað upp og hún verði eins og ný þegar hann hafi lokið verkinu. Baski er búinn að vera í alls konar verkum í kirkjunni; fylla upp í handriðið en þar voru sprungur út um allt og svo á hann eftir að taka bæði púltin og lagfæra þau. Þá er ætlunin að taka loftið í kirkjunni allt í gegn og setja það aftur í gamla horfið. Í kringum 1960 var dúkur settur í loftið sem var strekktur yfir. Hann hefur allur flosnað upp, einhvern tímann kom upp vatnsleki og náði að eyðileggja þennan dúk enn frekar.