Fréttir

true

Afmælisblað í stóru upplagi 15. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar nk. verða rétt 25 ár síðan Skessuhorn kom fyrst út. Blaðið sem verður gefið út miðvikudaginn 15. febrúar verður að hluta helgað afmælinu og sögu fyrirtækisins. Þá verða samkvæmt venju fréttir og viðtöl víðs vegar af Vesturlandi. Þetta tölublað verður prentað í sérstöku auka upplagi, en auk hefðbundinnar dreifingar til áskrifenda, verður…Lesa meira

true

Nýtt íþróttahús yrði ígildi hallar

Spjallað við Jón Egil Jónsson, íþrótta- og tómstundafulltrúa Dalabyggðar Dalamaðurinn Jón Egill Jónsson starfar sem íþrótta- og tómstundafulltrúi Dalabyggðar. Hann er giftur Stefaníu Björgu Jónsdóttur en hún er frá Grindavík og vinnur án staðsetningar heiman frá sem þjónusturáðgjafi hjá Arion banka í Borgarnesi. Saman eiga þau tvö börn, Sigurjón Egil 8 ára og Alexöndru Öglu…Lesa meira

true

Óviðunandi aðstæður fyrir flutning á laxi yfir Breiðafjörð

Tvíburabræðurnir Hafþór og Sævar Benediktssynir reka BB og syni ehf. í Stykkishólmi; öflugt verktakafyrirtæki með fjölbreytta flutningastarfsemi og 24 starfsmenn. Verkefnastaða er mjög góð um þessar mundir, að sögn Hafþórs Benediktssonar. Í samtali við Skessuhorn nefnir hann sem dæmi verkefni fyrir saltfiskvinnslu Þórsness og ígulkeravinnslu Þórishólma. Þá er talsverður snjómokstur, mikið er byggt í Stykkishólmi…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Stjörnunni í toppslag

Snæfell og Stjarnan áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfell gat með sigri jafnað Stjörnuna að stigum í deildinni og því var mikið undir fyrir heimakonur í þessum leik. Þetta var annar leikur liðanna á stuttum tíma því um miðja síðustu viku bar Snæfell sigurorð af…Lesa meira

true

Stefna að sameiningu níu ríkisstofnana í þrjár

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn í gær þau áform að sameina tíu af stofnunum ráðuneytisins í þrjár öflugar stofnanir. Nýjar stofnanir verða Náttúruverndar- og minjastofnun, Náttúruvísindastofnun og Loftslagsstofnun. „Megináhersla er þar lögð á að tryggja áfram fyrirliggjandi mannauð og þekkingu og að starfsfólk njóti forgangs til nýrra starfa,“ segir…Lesa meira

true

Modestas er enn saknað

Lögreglan á Vesturlandi sendi í dag frá sér tilkynningu þess efnis að Modestas Antanavicius sé enn saknað. „Björgunarsveitir og Lögreglan á Vesturlandi með aðstoð Landhelgisgæslunnar eru enn að leita þegar leitarskilyrði eru fyrir hendi. Þeir sem telja sig hafa orðið vara við hann eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-0300…Lesa meira

true

Frostskaðar að koma í ljós í sumarhúsum

Á um sjö vikna frostakafla sem hófst 7. desember hefur víða orðið tjón á vatnslögnum, enda fór frost yfir tuttugu gráður suma dagana. Eins og greint var frá í frétt Skessuhorns í nýliðnum mánuði var ítrekað að frjósa í vatnsinntaki í hesthúsahverfinu á Æðarodda við Akranes, hvar klaki var þá kominn 70 sentimetra niður í…Lesa meira

true

Talsvert um hraðakstur í skammdeginu

Á fimmtudaginn var lögregla við almennt umferðareftirlit á Snæfellsnesvegi skammt sunnan við Laufás og mættu bíl sem var á 148 kílómetra hraða. Stöðvuðu þeir för ökumanns sem játaði brot sitt og á von á að vera sviptur ökuréttindum og hárri sekt. Sama dag að kvöldi til var erlendur ferðamaður tekinn fyrir of hraðan akstur í…Lesa meira

true

Rithöfundakvöld á Græna kompaníinu slá í gegn

Þær Lilja Magnúsdóttir og Signý Gunnarsdóttir eiga og reka gistiheimilið og kaffihúsið Græna kompaníið í Grundarfirði. Græna kompaníið er lítið og notalegt kaffihús, bókabúð og hannyrðaverslun á neðri hæðinni en á efri hæðinni eru svo gistirými til útleigu. Þær Lilja og Signý voru búnar að ganga með þá hugmynd í maganum að fá rithöfunda til…Lesa meira

true

Bílabæ lokað í Borgarnesi

Í tilkynningu frá bifreiðaverkstæðinu Bílabæ við Brákarbraut 5 í Borgarnesi kemur fram að frá og með þessum mánaðamótum verði verkstæðinu lokað að minnsta kosti um tíma. Eingöngu verði um þjónustu dráttarbíls og bifreiðaflutninga að ræða og þakkar Hálfdán Þórisson eigandi Bílabæjar viðskiptavinum sínum traustið undangengin 16 ár. Skessuhorn heyrði í Hálfdáni og segir hann að…Lesa meira