
Fyrsta haustlægðin gekk yfir sunnan- og vestanvert landið á föstudagskvöld og aðfararnótt laugardags þar sem hviðurnar voru að slá upp í tæplega 40 metra á sekúndu. Þar að auki var töluvert stórstreymi þannig að sjórinn fór ansi nærri bryggjupollunum í Grundarfjarðarhöfn. Ekki er vitað til þess að veðrið hafi valdið neinu tjóni að þessu sinni…Lesa meira








