Fréttir

true

Heimsmeistaramóti íslenska hestsins lauk á sunnudaginn

Í síðustu viku fór heimsmeistaramót íslenska hestsins fram í Eindhoven í Hollandi. Mótið nú var haldið eftir fjögurra ára hlé vegna Covid-19. Fjöldi Íslendinga var á mótinu og stemning góð. Þeirra á meðal var m.a. stór hópur Borgfirðinga sem hélt utan í byrjun vikunnar og fylgdist með mótinu allt til loka á sunnudaginn. Gengi Íslendinga…Lesa meira

true

Á annað hundrað manns hjóluðu Grefilinn

Laugardaginn 12. ágúst var hjólreiðakeppnin Grefillinn haldin í þriðja sinn í Borgarfirðinum. Keppnin er haldin af hjólreiðadeild ungmennafélagsins Breiðabliks í Kópavogi. Keppt var í þremur vegalengdum: 200 km, 100 km og 45 km. Keppnin hófst og endaði í Logalandi en þeir sem fóru lengstu vegalengdina hjóluðu um Reykholtsdal, Lundarreykjadal, Kaldadal, Húsafell, Norðurárdal og Hvítársíðu. Um…Lesa meira

true

Rannsaka grunnvatnsstöðu á neðri hluta Akraness

Ábendingar hafa borist frá íbúum til Akraneskaupstaðar um háa grunnvatnsstöðu á neðri hluta Akraness. Fram kemur á heimasíðu bæjarins að í framhaldinu hafi Veitur ráðist í rannsóknir á sínum veitukerfum. Ekkert hefur hins vegar komið fram í þeim rannsóknum hingað til. Málið hefur verið til umfjöllunar innan stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Ákveðið var í framhaldinu að leita…Lesa meira

true

Skoða sameiningu Hólaskóla og Háskóla Íslands

Gengið hefur verið frá viljayfirlýsingu um aukið samstarf Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands og mögulega sameiningu skólanna. Undir samkomulagið rituðu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Jóni Atla Benediktssyni rektor Háskóla Íslands og Hólmfríði Sveinsdóttur rektor Háskólans á Hólum. „Fýsileikagreining verður unnin til þess að kanna hvaða útfærsla samstarfs eða samruna hentar best…Lesa meira

true

Tveir tapleikir hjá Reyni um helgina

Reynir Hellissandi lék tvo leiki í liðinni viku í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu og þurfti að sætta sig við tap í báðum leikjunum. Á föstudaginn tók Reynir á móti Stokkseyri á Ólafsvíkurvelli þar sem gestirnir komust yfir á fimmtu mínútu með marki frá Þórhalli Aroni Mássyni en Daníel Áki Gunnarsson jafnaði fyrir…Lesa meira

true

Niðurrif hafið á Suðurgötu á Akranesi

Í vikunni hófst niðurrif á húsinu við Suðurgötu 124 á Akranesi og er það verktakafyrirtækið Urð og grjót ehf sem er með umsjón með verkinu. Þetta er fyrsta húsið af fjórum sem verður rifið niður og fjarlægt en hin mannvirkin eru á lóðunum Dalbraut 8 og 10 sem eru gamla Rafveituhúsið og hús Fjöliðjunnar og…Lesa meira

true

Kristinn kaupir hlut Óskars í Borgarverki

Viðskiptafélagarnir Óskar Sigvaldason og Kristinn Sigvaldason hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðar nefnda á öllu hlutafé í Borgarverki ehf. Fyrir viðskiptin áttu þeir helmings hlut hvor og báðir lagt grunn að því að gera Borgarverk að öflugasta fyrirtækinu á Vesturlandi, samkvæmt samantekt Creditinfo. Atli Þór Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Borgarverks og tekur…Lesa meira

true

Reykur á svölum, ökklabrot og umferðin á Vesturlandi

Átta umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku en engin eða minniháttar slys á fólki. Erlendur ferðamaður hrasaði við Rauðfeldargjá á Snæfellsnesi og slasaðist á ökkla og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Tilkynnt var um eld á svölum í fjölbýlishúsi á Akranesi en þegar að var gáð reyndist húsráðandi…Lesa meira

true

Stærsti dagur sumarsins á höfninni

Það var ansi mikið um að vera á Grundarfjarðarhöfn í gær, mánudag. Þar lágu tvö skemmtiferðaskip við landfestar og þriðja og stærsta skipið lá við ankeri utan við ytri höfnina. Þetta voru skipin Le Bellot, Insigna og Norwegian Star sem var það stærsta. Alls voru um 3.300 farþegar sem komu á land úr skipunum þremur…Lesa meira

true

Starfsemin komin af stað hjá Keilufélagi Akraness

Hjá Keilufélagi Akraness er starfsemin komin í gang þar sem einstaklingar hjá félaginu voru valdir til að taka þátt í mótunum U30 Euro National Challenge og Triple Crown sem fram fara í Livingston í Skotlandi núna í ágúst. Þetta er landsliðsverkefni og nokkurs konar vináttuleikar. Tvö gull, þrjú silfur og eitt brons hjá Ísak Birki…Lesa meira