
Þorgeir Ólafsson ríður hér Höfða frá Bergi í Grundarfirði sem stóð efstur í kynbótadómi 5 vetra stóðhesta.
Heimsmeistaramóti íslenska hestsins lauk á sunnudaginn
Í síðustu viku fór heimsmeistaramót íslenska hestsins fram í Eindhoven í Hollandi. Mótið nú var haldið eftir fjögurra ára hlé vegna Covid-19. Fjöldi Íslendinga var á mótinu og stemning góð. Þeirra á meðal var m.a. stór hópur Borgfirðinga sem hélt utan í byrjun vikunnar og fylgdist með mótinu allt til loka á sunnudaginn.