
Mikið er gott að komast í mark! Ljósm. Flickr-síða Grefilsins.
Á annað hundrað manns hjóluðu Grefilinn
Laugardaginn 12. ágúst var hjólreiðakeppnin Grefillinn haldin í þriðja sinn í Borgarfirðinum. Keppnin er haldin af hjólreiðadeild ungmennafélagsins Breiðabliks í Kópavogi. Keppt var í þremur vegalengdum: 200 km, 100 km og 45 km. Keppnin hófst og endaði í Logalandi en þeir sem fóru lengstu vegalengdina hjóluðu um Reykholtsdal, Lundarreykjadal, Kaldadal, Húsafell, Norðurárdal og Hvítársíðu. Um 120 manns tóku þátt í keppninni, þar af nokkrir Vestlendingar sem gerðu sér lítið fyrir og skutust á verðlaunapall. Þorsteinn Bárðarson frá Rifi varð efstur í 200 km karlaflokki og Borgfirðingurinn Siggi Sigbjörnsson varð efstur í 45 km. Önnur úrslit voru sem hér segir: