Fréttir

true

Breytingar kynntar á aðalnámskrá leikskóla

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað til fundaraðar um breytingar sem gera á á aðalnámskrá leikskóla. Þær eiga að taka gildi 1. september næstkomandi en verða að fullu innleiddar í öllum leikskólum landsins 1. ágúst 2024. Breytingarnar skýra nánar hlutverk leiksins sem námsleið leikskólans og hvernig meta megi með reglubundnum hætti, og með virkri þátttöku barna,…Lesa meira

true

Þrjár hverfishleðslustöðvar settar upp

Settar hafa verið upp þrjár rafbílahleðslustöðvar á Akranesi fyrir almenning í samvinnu við ON. Þetta er á þremur stöðum þar sem búið var að undirbúa uppsetninguna áður, á bílastæði golfklúbbsins Leynis við Garðavelli, á bílastæði á Stillholti 16-18 og við Brekkubæjarskóla. ON hefur hafið uppsetningu á þremur staurum með tveimur tenglum fyrir alls sex bifreiðar…Lesa meira

true

Mast innkallar veganréttinn Shicken Butter Curry

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á einni framleiðslulotu af breskum veganrétti Shicken Butter Curry sem Veganmatur ehf. flytur inn vegna málmhlutar sem fannst í vörunni. Fyrirtækið, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað vöruna. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Shicken.Vöruheiti: Shicken Butter Curry.Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 09.08.2023Lotunúmer: 05217.Strikamerki: 5065008359043.Innflytjandi: Veganmatur ehf., Faxafeni 14.Framleiðandi: Shicken Foods.Framleiðsluland: Bretland.Dreifing: Verslanir Krónunnar, Nettó, Hagkaupa og Vegan…Lesa meira

true

Víkingur Ó. og Kári úr leik í Fótbolta.net bikarnum

Í gærkvöldi voru fyrstu þrír leikirnir í átta liða úrslitum Fótbolta.net bikarsins í knattspyrnu karla. Víkingur Ólafsvík tók á móti KFA sem er sameiginlegt lið Leiknis á Fáskrúðsfirði og Fjarðabyggðar á Ólafsvíkurvelli og úr varð hörkuleikur. Leikurinn byrjaði fjörlega þar sem bæði lið áttu ágætis færi og það var síðan Ivan Blanco sem kom gestunum…Lesa meira

true

Heimsmeistaramót íslenska hestsins hafið í Hollandi

Í byrjun vikunnar hófst heimsmeistaramót íslenska hestsins. Mótið er haldið eftir fjögurra ára hlé og fer nú fram í Eindhoven í Hollandi. Fjöldi Íslendinga er á mótinu og þeirra á meðal er m.a. mjög stór hópur Borgfirðinga sem hélt utan í byrjun vikunnar. Jafnvel eru dæmi um að sumar sveitir hafi hálftæmst af fólki vegna…Lesa meira

true

Opið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði

Matvælaráðuneytið kynnir að opnað hefur verið fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Þeir einstaklingar geta sótt um stuðning sem uppfylla neðangreindar kröfur: a. Uppfylla skilyrði skv. 3. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað. b. Eru á aldrinum 18-40 ára…Lesa meira

true

Skagamenn með öruggan sigur á Gróttu

Eftir að hafa tapað stórt á móti Leikni R. fyrir verslunarmannahelgi komu Skagamenn sér aftur á sigurbraut í gærkvöldi þegar þeir unnu góðan sigur á Gróttu en leikurinn fór fram á Vivaldi vellinum á Seltjarnarnesi. Gestirnir komust yfir í leiknum á 8. mínútu þegar markahrókurinn Viktor Jónsson skoraði sitt 15. mark í jafn mörgum leikjum…Lesa meira

true

Eiríksstaðahátíð verður um helgina

Seinni hátíð sumarsins á Eiríksstöðum í Haukadal verður um næstu helgi, dagana 11.-13. ágúst. Hátíðin mun snúast um tilraunir með fornt handbragð, aðferðir og lífsstíl 10. aldar. „Nú skoðum við vinnslu allskonar handverks og járnvinnslu, en einnig er þessi hátíð tileinkuð reflum. Til stendur að byggja nýtt hús á Eiríksstöðum, jarðhýsi byggt á fornleifum og…Lesa meira

true

Mikil umferð en gekk almennt vel

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku urðu alls sjö umferðaróhöpp en ekki voru talin alvarleg slys á fólki í neinum þessara mála. Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi, ökumaður og tvö ung börn voru í bílnum. Börnin voru í barnabílstólum, ökumaður í bílbelti og engin slys urðu á fólki. Hjólhýsi fór að sveiflast aftan í…Lesa meira

true

Hafrafellslón komið á yfirfall og gæti hlaupið úr því

Fólk hvatt til að hafa varann á sér komi til flóðs Nú er talið mögulegt að hlaupið geti úr Hafrafellslóni, sem er í krika vestan til við jaðar Langjökuls, en lónið hefur frá því um mitt sumar verið fullt. Vísindamenn hafa reyndar velt þeirri spurningu upp hvort eitthvað hafi breyst í farveginum undir jöklinum eftir…Lesa meira