Eiríksstaðahátíð verður um helgina

Seinni hátíð sumarsins á Eiríksstöðum í Haukadal verður um næstu helgi, dagana 11.-13. ágúst. Hátíðin mun snúast um tilraunir með fornt handbragð, aðferðir og lífsstíl 10. aldar. „Nú skoðum við vinnslu allskonar handverks og járnvinnslu, en einnig er þessi hátíð tileinkuð reflum. Til stendur að byggja nýtt hús á Eiríksstöðum, jarðhýsi byggt á fornleifum og hófst það ferli í vor á fyrri hátíðinni okkar. Allar okkar hátíðir helgast af því að lofa gestum að taka virkan þátt, munda vopn, prófa handverk og smakka mat, sem gefur hugmyndir um lífshætti á landnámsöld,“ segir í tilkynningu.

Eiríksstaðahátíð verður um helgina - Skessuhorn