Fréttir

true

Naumt tap Skallagríms gegn toppliðinu

Skallagrímur tók á móti Vængjum Júpiters í 14. umferð 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Fyrir leik voru gestirnir í toppsætinu með 29 stig á meðan Skallarnir voru í áttunda sæti á öruggum stað með 16 stig. Vængir Júpiters spiluðu með vindinn í bakið í fyrri hálfleik…Lesa meira

true

Grunnskólastarf hefst von bráðar

Nú líður að hausti og fjölskyldur í landshlutanum að komast í fyrri rútínu eftir sumarleyfi og ferðalög. Leikskólastarf er víða byrjað og aðlögun yngstu barnanna hafin. Grunnskólar á Vesturlandi hefjast flestir dagana 22. og 23. ágúst, eða í þeirri viku. Tíu grunnskólar eru nú starfræktir í landshlutanum, einum færri en á síðasta skólaári því rekstri…Lesa meira

true

Íbúar á Vesturlandi að nálgast 18 þúsund

Hagstofan hefur gefið út tölur um fjölda íbúa í sveitarfélögum landsins 1. ágúst síðastliðinn. Á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. ágúst sl. hefur íbúum fjölgað um 450 á Vesturlandi, eða um 2,6%. Þeir eru nú 17.936. Mest hefur breytingin orðið í Borgarbyggð þar sem fjölgaði á tímabilinu um 213 íbúa, eða um 5,2%,…Lesa meira

true

Rétt slapp úr bílnum áður en hann varð alelda – myndir

Ökumaður Range Rover jeppa slapp ómeiddur eftir að eldur gaus upp í bíl hans á móts við Hótel Hafnarfjall síðdegis í dag. Ökumaðurinn kvaðst í samtali við blaðamann Skessuhorns hafa orðið var við að hasarljósin fóru að blikka í bílnum en um svipað leyti varð hann var við reyk. Ákvað hann að stoppa á næsta…Lesa meira

true

Opnuðu nýjan veitingastað í Borgarnesi

Fimmtudagskvöldið 3. ágúst síðastliðinn var veitingastaðurinn Dirty Burger & Ribs opnaður við brúarsporðinn í Borgarnesi. Staðurinn er til húsa þar sem Grillhúsið var síðast en sá staður var færður yfir götuna í stærra hús fyrr á árinu. Þetta er þriðji veitingastaðurinn sem Birgir Helgason eigandi Dirty Burger & Ribs opnar hér á landi, en hinir…Lesa meira

true

Sveitakeppnir karla og kvenna í golfi aðra helgi á Vesturlandi

Það verður nóg að gera hjá kylfingum á Vesturlandi um aðra helgi, frá föstudegi til sunnudags. Sveitakeppni í 2. deild karla í golfi verður leikin á Garðavelli á Akranesi þann 18. – 20. ágúst næstkomandi. Átta golfklúbbar taka þátt og eru þeir eftirfarandi: Golfklúbbur Kiðjabergs, Golfklúbburinn Esja, Nesklúbburinn, Golfklúbburinn Oddur, Golfklúbbur Setbergs, Golfklúbburinn Leynir, Golfklúbbur…Lesa meira

true

Klappir tefja framkvæmdir við stofngötu í Borgarnesi

Frá því í vor hefur verið unnið við síðari áfanga endurnýjunar hluta Borgarbrautar í Borgarnesi, frá gatnamótum við Skallagrímsgötu og upp að gatnamótum við Böðvarsgötu og Þorsteinsgötu. Verkið er samstarf Veitna, Rarik, Vegagerðarinnar og Borgarbyggðar og felst í endurnýjun fráveitu-, hitaveitu- og vatnslagnaásamt endurnýjun á yfirborð götu og gangstíga. Samkvæmt verkáætlun er gert ráð fyrir…Lesa meira

true

Færðu kirkjunni orgel að gjöf

Garpsdalskirkju á Reykhólum var á dögunum fært harmoníum orgel sem afkomendur Jóhanns Guðmundssonar á Hólmavík gáfu kirkjunni. Það voru þeir Ingimundur og Þorkell synir Jóhanns og Jón Ingimundarson sonarsonur hans sem afhentu sóknarnefnd Garpsdalskirkju hljóðfærið. Þetta orgel var í eigu Jóhanns Guðmundssonar en hann féll frá snemma á þessu ári. Hljóðfærið er í ágætu standi…Lesa meira

true

Innlend kortavelta dróst saman

Kortavelta í júlímánuði nam 133,8 milljörðum króna. Þar af var innlend kortavelta 92,1 milljarðar króna en það er lækkun um 2,2% frá júnímánuði. Innlenda kortaveltan jókst á milli ára í júlí um 5,4%. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar. Netverslun Íslendinga jókst um 20% á milli ára og nam 14,6 milljörðum króna. Erlend kortavelta…Lesa meira

true

Atvinnuleysi í lágmarki

Atvinnuleysi var 2,5% í júní, samkvæmt samantekt Hagstofunnar, og dróst saman um 1,2 prósentustig á milli mánaða. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,7% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi á vinnumarkaði var 78,7%. Þessar tölur um atvinnuleysi gefa til kynna að allir sem raunverulega vilja og geta unnið, hafa kost á því. Atvinnuleysi á landsvísu fer sjaldan eða aldrei…Lesa meira