Mikinn og svartan reyk lagði frá bílnum. Myndin er tekin skömmu áður en slökkvistarf hófst. Ljósm. Skessuhorn/mm

Rétt slapp úr bílnum áður en hann varð alelda – myndir

Ökumaður Range Rover jeppa slapp ómeiddur eftir að eldur gaus upp í bíl hans á móts við Hótel Hafnarfjall síðdegis í dag. Ökumaðurinn kvaðst í samtali við blaðamann Skessuhorns hafa orðið var við að hasarljósin fóru að blikka í bílnum en um svipað leyti varð hann var við reyk. Ákvað hann að stoppa á næsta mögulega stað sem svo heppilega vildi til að var bílastæðið við Seleyri, sunnan við Borgarfjarðarbrú. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slapp hann ómeiddur. Rúmri mínútu eftir að hann steig út úr bílnum var hann alelda. Vegfarendur sem komu að losuðu frá bílnum áfasta kerru sem á var lítið gróðurhús.

Rétt slapp úr bílnum áður en hann varð alelda - myndir - Skessuhorn