
Birgir Helgason vert á Dirty Burger and Ribs í Borgarnesi.
Opnuðu nýjan veitingastað í Borgarnesi
Fimmtudagskvöldið 3. ágúst síðastliðinn var veitingastaðurinn Dirty Burger & Ribs opnaður við brúarsporðinn í Borgarnesi. Staðurinn er til húsa þar sem Grillhúsið var síðast en sá staður var færður yfir götuna í stærra hús fyrr á árinu. Þetta er þriðji veitingastaðurinn sem Birgir Helgason eigandi Dirty Burger & Ribs opnar hér á landi, en hinir staðirnir eru við Miklubraut gegnt Kringlunni og í Austurstræti í Reykjavík.