
Úr leik Víkings og KFA. Ljósm. af
Víkingur Ó. og Kári úr leik í Fótbolta.net bikarnum
Í gærkvöldi voru fyrstu þrír leikirnir í átta liða úrslitum Fótbolta.net bikarsins í knattspyrnu karla. Víkingur Ólafsvík tók á móti KFA sem er sameiginlegt lið Leiknis á Fáskrúðsfirði og Fjarðabyggðar á Ólafsvíkurvelli og úr varð hörkuleikur. Leikurinn byrjaði fjörlega þar sem bæði lið áttu ágætis færi og það var síðan Ivan Blanco sem kom gestunum yfir eftir tæpan hálftíma leik þegar hann fékk boltann í teignum eftir hornspyrnu og þrumaði honum í netið. Gunnar Bragi Jónasson markvörður Víkings hélt heimamönnum inni í leiknum með nokkrum góðum vörslum undir lok fyrri hálfleiks en staðan í hálfleik 0-1 fyrir KFA.