Fréttir

true

Flemming púttmót haldið í norðan vindi á Hvammstanga

Hið opna Flemming-púttmót fór fram föstudaginn 28. júlí á Hvammstanga. Þátttaka var ágæt en 39 þátttakendur voru á mótinu, völlurinn sæmilegur og slapp til með veður, að sögn Flemming Jessen mótshaldara. Að venju voru leiknar 2×18 holur á mótinu, alls 36. Er þetta í 13. sinn sem mótið er haldið, en það fyrsta var haldið…Lesa meira

true

Gæti skýrst í þessari viku hvort samningar náist um ferjusiglingar

Sæferðir eru í eigu Eimskips og hefur fyrirtækið m.a. sinnt rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs auk annarra siglinga um Breiðafjörð. Fyrirtækið sagði á þriðjudaginn í síðustu viku upp öllum 22 starfsmönnum sínum í ljósi óvissu um hvort samið verði við það um ferjusiglingar yfir Breiðafjörð. Tilboð fyrirtækisins í siglingar fyrir árin 2023-2026 reyndist það eina sem barst…Lesa meira

true

Malbikað á Arnarstapa

Í dag lauk framkvæmdum við malbikun á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Í frétt á FB síðu Snæfellsbæjar er sagt að vel hafi tekist til og nú sé svæðið mun snyrtilegra en það var. Framkvæmdir stóðu einungis yfir í einn dag.Lesa meira

true

Gott að koma í Nettó þegar viðmótið er hlýtt

Síðastliðinn föstudag var margt viðskiptavina í Nettó í Borgarnesi enda helgin nærri og margir á ferð. Fólk var dálítið þreytulegt í röðinni við kassann. En þar var þá eldhress afgreiðslumaður sem heilsaði hverjum og einum með virktum. Spurði hvort viðkomandi fyndist þetta ekki frábær dagur, það hlyti að vera gaman að koma í þessa fínu…Lesa meira

true

Úr safni: Það finnst alltaf laus stund þegar þess þarf

Segja hjónin Björg og Óðinn í Einarsnesi í spjalli um bú- og félagsstörf, áhugamál og fleira fróðlegt. Viðtal sem birtist í Jólablaði Skessuhorns árið 2005. Það hefur verið talið gott undir bú á bökkum Hvítár. Því veldur m.a. að víðast á láglendinu meðfram ánni eru flæðiengjar sem til skamms tíma voru bændum dýrmætar. Stör er…Lesa meira

true

Viktor á skotskónum í stórsigri Skagamanna

Skagamenn áttu sannarlega góðan föstudag þegar þeir mættu Aftureldingu í Mosfellsbænum í þýðingarmiklum leik í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Gestgjafarnir sátu fyrir leikinn á toppi deildarinnar, en með sigri komust Skagamenn upp í annað sætið og eiga auk þess leik til góða, hafa nú átta stigum minna en toppliðið. Það var Viktor Jónsson sem átti…Lesa meira

true

Úr safni: Hafa ekki alltaf farið troðnar slóðir

Viðtal við hjónin Vigdísi og Árna á Brennistöðum í Flókadal birtist upphaflega í jólablaði Skessuhorns árið 2004. Árni Theódórsson lést 4. apríl 2010. Hjónin voru titluð bændur, uppalendur og frumkvöðlar í ferðaþjónustu í inngangi viðtalsins frá 2004. Jörðin Brennistaðir er innarlega í Flókadal í uppsveitum Borgarfjarðar. Húsin á bænum standa hátt og eru reisuleg í…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu á móti ÍR og misstu af toppsætinu

ÍR og ÍA áttust við í stórleik umferðarinnar í 2. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á ÍR-velli í Breiðholti. Fyrir leik var ÍR í 4. til 5. sæti ásamt Fjölni með 24 stig og ÍA í því sjötta með 23 stig og ljóst að sigurliðið myndi ná toppsætinu. Leikurinn var í…Lesa meira

true

Stjórnvaldssekt lögð á tvö bú á Vesturlandi

Matvælastofnun hefur nýlega lagt stjórnvaldssektir á tvö bú á Vesturlandi vegna brota á lögum um dýravelferð. Annars vegar var um að ræða bú þar sem hluti fjárins hafði sloppið af bænum fyrir burð og bar því eftirlitslaust og hins vegar bú þar sem nautgripir reyndust vanfóðraðir. Þá hefur Matvælastofnun einnig óskað eftir rannsókn lögreglunnar á…Lesa meira

true

Kári laut í lægra haldi fyrir Elliða

Knattspyrnufélag Kára frá Akranesi og lið Elliða úr Árbænum áttust við í 3. deild karla í gærkvöldi og var viðureignin í Akraneshöllinni. Fyrir leik var Kári í sjötta sæti deildarinnar með 19 stig og Elliði sæti neðar með 17 stig. Það var því mikið undir enda hefðu Káramenn með sigri skellt sér upp í fjórða…Lesa meira