Fréttir

true

Norðurál hlýtur Fjörusteininn

Norðurál hlaut á dögunum Fjörusteininn, umhverfisverðlaun Faxaflóahafna. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007 en þau hljóta fyrirtæki sem starfa á hafnarsvæðunum, sýna fram á framsækni í umhverfismálum og eru til fyrirmyndar hvað varðar frágang á lóðum og snyrtilegt umhverfi.   Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að frágangur, aðkoma og umgengni á lóð Norðuráls á…Lesa meira

true

Sigurður Einar ráðinn til HVE

Greint hefur verið frá því á vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að Sigurður Einar Sigurðsson hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á stofnuninni og muni hefja störf 1. september nk. Hann tekur við af Þóri Bergmundssyni sem hefur gegnt starfinu frá stofnun HVE árið 2010 og var áður framkvæmdastjóri lækninga á SHA (Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi) frá…Lesa meira

true

Mikið fjölmenni í Gleðigöngu Hinseginhátíðar – myndasyrpa

Hinseginhátíð Vesturlands fór fram um helgina á Akranesi þar sem fagnað var fjölbreytileikanum. Alls konar viðburðir voru í boði alla helgina og hápunktinum var náð á laugardeginum þegar Gleðigangan fór af stað frá Stjórnsýsluhúsinu við Stillholt og lauk með skemmtidagskrá á Akratorgi. Að sögn Guðrúnar St. Guðbrandsdóttur hjá Hinsegin Vesturlandi tókst hátíðin afar vel og…Lesa meira

true

Flokka og skila einu húsi – myndir

Síðustu daga hefur staðið yfir niðurrif á KFUM húsinu við Garðabraut 1 á Akranesi. Á lóðinni verður á næstu vikum byrjað að byggja stórt fjölbýlishús. Það eru starfsmenn byggingafyrirtækisins Bestla sem unnið hafa að niðurrifi gamla hússins. Lóðin er við hlið ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns. Þannig hafa starfsmenn blaðsins fylgst með því hvernig samviskusamlega allt sem í…Lesa meira

true

Gosmóðan er varasöm

Mikil gosmóða lá yfir öllu vestanverðu landinu fyrir og um helgina og var um að ræða gamlan gosmökk frá eldgosinu við Litla Hrút. Mengunin barst auk þess um Vestfirði, Norðurland og Suðurland. Brennisteinstvíoxíð (SO2) úr gosinu hefur hvarfast við raka í loftinu. Til frekari fróðleiks leitaði Skessuhorn í smiðju Vísindavefjar Háskóla Íslands. Þar kemur fram…Lesa meira

true

Leggja til tímabundnar ívilnanir til að laða heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðina

Nýta mætti heimildir í lögum um Menntasjóð námsmanna til að veita tímabundnar ívilnanir við endurgreiðslu námslána í þeim tilgangi að fá fleiri sérfræðinga til starfa í heilbrigðisþjónustu, einkum í dreifðum byggðum þar sem er viðvarandi eða fyrirsjáanlegur skortur er á fólki með tiltekna menntun. Þetta kemur fram í tillögum starfshóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins sem falið…Lesa meira

true

Brúarframkvæmdum á Skógarströnd að ljúka

Unnið er við lagningu nýs Snæfellsnesvegar (54) um Skógarströnd á um 5,4 km kafla milli Ketilsstaða og Gunnarsstaða. Það er Borgarverk ehf. sem er verktakinn. Þá er nánast búið að byggja tvær brýr á þessari leið, yfir árnar Dunká og Skraumu. Það eru fyrirtækin Húsheild og Hyrna sem eru undirverktakar Borgarverks í brúarvinnunni. Nýja brúin…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Knattspyrnufélagi Kópavogs

Lið Skallagríms tapaði gegn KFK 5:2 í Kópavogi í gær í 4. deild karla. Það var Andri Jónasson sem náði forystunni fyrir heimaliðið strax á 15. mínútu leiksins en Skallagrímsmenn jöfnuðu á 39. mínútu með marki Sölva Snorrasonar. Hubert Rafal Kotus náði forystunni að nýju fyrir heimamenn með marki úr vítapyrnu á lokamínútu hálfleiksins og…Lesa meira

true

Tap hjá Víkingi gegn Dalvík/Reyni

Það var afleit byrjun hjá Víkingi Ólafsvík sem varð liðinu að falli þegar það mætti Dalvík/Reyni í 2. deild karla í knattspyrnu á Dalvíkurvelli í gær. Áki Sölvason kom heimamönnum yfir strax á 4. mínútu leiksins og tíu mínútum síðar bætti Rúnar Helgi Björnsson öðru marki við. Rétt fyrir leikhlé skoraði svo Áki Sölvason sitt…Lesa meira

true

Sterkur útisigur hjá Káramönnum

Leikmenn Kára á Akranesi gerðu góða ferð í Kópavoginn í gær og sigruðu þar lið Augnabliks 2:1 í 3. deild karla. Káramenn byrjuðu leikinn mjög vel og náði Marinó Hilmar Ásgeirsson forystunni fyrir þá strax á þriðju mínútu leiksins. Á þeirri 26. bætti Hilmar Halldórsson við öðru marki fyrir Kára. Augnablik náði að minnka muninn…Lesa meira