
Skallagrímur tapaði fyrir Knattspyrnufélagi Kópavogs
Lið Skallagríms tapaði gegn KFK 5:2 í Kópavogi í gær í 4. deild karla. Það var Andri Jónasson sem náði forystunni fyrir heimaliðið strax á 15. mínútu leiksins en Skallagrímsmenn jöfnuðu á 39. mínútu með marki Sölva Snorrasonar. Hubert Rafal Kotus náði forystunni að nýju fyrir heimamenn með marki úr vítapyrnu á lokamínútu hálfleiksins og í kjölfarið fékk Kristinn Haukur Þorkelsson Skarstad sitt annað gula spjald og þar með rautt og Skallagrímsmenn einum færri allan síðari hálfleikinn.