
Akraneskaupstaður var með vagn sem var ekið af bæjarstjóranum. Ljósmyndir: Díana Ósk Heiðarsdóttir.
Mikið fjölmenni í Gleðigöngu Hinseginhátíðar – myndasyrpa
Hinseginhátíð Vesturlands fór fram um helgina á Akranesi þar sem fagnað var fjölbreytileikanum. Alls konar viðburðir voru í boði alla helgina og hápunktinum var náð á laugardeginum þegar Gleðigangan fór af stað frá Stjórnsýsluhúsinu við Stillholt og lauk með skemmtidagskrá á Akratorgi. Að sögn Guðrúnar St. Guðbrandsdóttur hjá Hinsegin Vesturlandi tókst hátíðin afar vel og giskar hún á að yfir tvö þúsund manns hafi tekið þátt í Gleðigöngunni. Ljósmyndari Skessuhorns var á staðnum og tók nokkrar myndir af stemningunni í göngunni þar sem lagt var upp með að hafa meira en nóg af fjöri, miklu frelsi og mjög taktfastri tónlist.