
Þessi mynd var tekin í móðufylltum Reykholtsdal síðastliðið föstudagskvöld. Skáneyjarbungan er þarna hálfhulin í gosmóðu. Ljósm. gó
Gosmóðan er varasöm
Mikil gosmóða lá yfir öllu vestanverðu landinu fyrir og um helgina og var um að ræða gamlan gosmökk frá eldgosinu við Litla Hrút. Mengunin barst auk þess um Vestfirði, Norðurland og Suðurland.