
Allt sem úr húsinu kemur er flokkað og efnið sett í aðskilda gáma. Ljósm. mm
Flokka og skila einu húsi – myndir
Síðustu daga hefur staðið yfir niðurrif á KFUM húsinu við Garðabraut 1 á Akranesi. Á lóðinni verður á næstu vikum byrjað að byggja stórt fjölbýlishús. Það eru starfsmenn byggingafyrirtækisins Bestla sem unnið hafa að niðurrifi gamla hússins. Lóðin er við hlið ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns. Þannig hafa starfsmenn blaðsins fylgst með því hvernig samviskusamlega allt sem í húsinu var hefur verið flokkað eftir kúnstarinnar reglum og sett í endurvinnslugáma. Sama hvort það hafa verið innréttingar, þakplötur, timbur, stál eða aðrir húshlutar. Meðfylgjandi myndir voru teknar rétt í þessu af húsrifinu sem nú stendur yfir.