Fréttir

true

Niðurstöður vefkönnunar meðal íbúa um Sögutorgin í Borgarnesi

Nýverið var gefin út skýrsla sem sýnir niðurstöður vefkönnunar sem fram fór í maí og júní um Sögutorgin í Borgarnesi. Könnunin var unnin í tengslum við forhönnun tveggja torga í gamla bænum í Borgarnesi og ássins sem liggur á milli þeirra. Lagt var upp með að forhanna bæði þessi torg í samvinnu við íbúa og…Lesa meira

true

Flokkar og telur fyrir björgunarsveitina Ok

Ein af þeim fjáröflunarleiðum sem björgunarsveitir víða um land hafa tekið upp er móttaka, söfnun og skil á einnota drykkjarvöruumbúðum. Þeirra á meðal er björgunarsveitin Ok í Borgarfirði. Sveitin er með söfnunargáma staðsetta á nokkrum stöðum um héraðið, meðal annars á Húsafelli, Grímsstöðum og í Skorradal. Félagsmenn skipta svo á milli sín verkefnum. Sumir sækja…Lesa meira

true

Sölubann lagt á grágæs

Í samráðsgátt stjórnvalda er nú hægt að lesa og eftir atvikum gera athugasemdir við drög umhverfisráðuneytisins að breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum. Frestur til að gera athugasemdir er til 8. ágúst næstkomandi. Breytingin lýtur að því að óheimilt verði að bjóða til sölu eða selja grágæs og…Lesa meira

true

Heyskapur í Hallkelsstaðahlíð

Það mætti blaðamanni Skessuhorns ilmandi töðulykt þegar stoppað var við túnin hjá bændum í Hallkelsstaðahlíð í Kolbeinsstaðarhreppi síðastliðinn miðvikudag. Feðgarnir Skúli og Guðmundur voru að múga og rúlla heyinu og dálagleg törn framundan hjá þeim því margir hektarar lágu flatir. Allt gekk það að óskum og heyinu hefur nú öllu verið pakkað. Í Hallkelsstaðahlíð er…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Vestfjarðaveg – myndir

Gríðarmiklar framkvæmdir eru nú í gangi við samgöngur í Þorskafirði. Brú er risin yfir fjörðinn og nýr vegur að taka á sig mynd í gegnum títtnefndan Teigsskóg. Þá er búið að leggja nýjan veg frá Djúpadal sem mun í framtíðinni tengjast veginum frá Þorskafirði. Að sögn Óskars Sigvaldasonar framkvæmdastjóra Borgarverks mun vegaframkvæmdum ljúka í haust,…Lesa meira

true

Tap hjá kvennaliði ÍA gegn Einherja

Kvennalið meistaraflokks ÍA lék í gær í 2. deild kvenna gegn Einherja á Vopnafirði. Leikar fóru þannig að Einherji sigraði 1:0. Eina mark leiksins skoraði Karólína Dröfn Jónsdóttir strax á 17. mínútu leiksins. Skagakonur náðu því ekki að svara fyrir sig það sem eftir lifði leiks. Undir lok leiksins fékk Coni Adelina Ion leikmaður Einherja…Lesa meira

true

Tap hjá Reyni Hellissandi gegn Höfnum

Reynir Hellissandi tapaði í gær í leik gegn Höfnum 1:3 en spilað var á Ólafsvíkurvelli. Friðrik Skúli Reynisson kom gestunum yfir á 35. mínútu leiksins og staðan 0:1 í hálfleik. Eftir klukkutíma leik kom Þorgils Gauti Halldórsson Höfnum í 0:2 og tíu mínútum síðar skoraði Bjartur Logi Kristinsson þriðja mark gestanna. Reynir frá Hellissandi náði…Lesa meira

true

Góður sigur Skagamanna í Grindavík

Skagamenn lönduðu góðum 2:0 útisigri gegn Grindvíkingum í Lengudeildinni í fótbolta í leik sem fram fór í Grindavík á föstudagskvöldið. Gestirnir byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu forystunni strax á 5. mínútu. Þá fengu þeir hornspyrnu sem Arnór Smárason tók og Indriði Áki Þorláksson skoraði með föstum skalla á nærstöng. Eftir markið héldu gestirnir…Lesa meira

true

Dagskrá Reykholtshátíðar kynnt

Reykholtshátíð verður haldin helgina 28.-30. júlí í ár og hefst því eftir tæpa viku. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar ásamt hátíðarmessu sem fara mun fram sunnudaginn 30. júlí kl. 14. Fyrirlesari þetta árið er Friðrik…Lesa meira

true

Opna ljósmyndasýningu til styrktar Landsbjörgu

Í kvöld klukkan 19 verður opnuð ljósmyndasýning frá eldgosinu við Litla-Hrút í Gallerí Kofa á Hafnartorgi í Reykjavík. Þar hefur hópur ljósmyndara tekið sig saman og lagt verk sín á sýninguna til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Ljósmyndirnar eru 25 talsins og eiga það sameiginlegt að vera teknar á fyrstu dögum eldgossins. Sýningin stendur í 14 daga…Lesa meira