
Næst á mynd er Landnámstorg/Brákartorg. Ljósm. mm
Niðurstöður vefkönnunar meðal íbúa um Sögutorgin í Borgarnesi
Nýverið var gefin út skýrsla sem sýnir niðurstöður vefkönnunar sem fram fór í maí og júní um Sögutorgin í Borgarnesi. Könnunin var unnin í tengslum við forhönnun tveggja torga í gamla bænum í Borgarnesi og ássins sem liggur á milli þeirra. Lagt var upp með að forhanna bæði þessi torg í samvinnu við íbúa og aðra hagsmunaaðila í Borgarnesi. Alls voru 54 sem svöruðu könnuninni að fullu eða að hluta. Í hnotskurn voru niðurstöður þær að þátttakendur voru almennt hlynntir uppbyggingu í gamla bænum. Við forhönnun Skallagrímstorgs/Kveldúlfstorgs og Landnámstorgs/Brákartorgs vildu þátttakendur helst að lögð yrði áhersla á mannlíf, svo á sögu og minjar og loks á náttúru og útsýni.