
Alvarlegt umferðarslys varð á Snæfellsnesvegi norðan við Hítará í hádeginu í gær. Þar rákust saman tvær bifreiðar; húsbíll og jepplingur, sem komu úr gagnstæðri átt. Sjö erlendir ferðamenn voru í bifreiðunum og var farþegi úr annarri þeirra úrskurðaður látinn á vettvangi. Þrír voru fluttir af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar og þrír með sjúkrabifreið. Báðar bifreiðar…Lesa meira








