Fréttir

true

Víkingur skellti sér á toppinn eftir stórsigur á Sindra

Víkingur Ólafsvík og Sindri mættust í 8. umferð 2. deildar karla á laugardaginn á sjálfan Þjóðhátíðardaginn og má með sanni segja að það hafi verið hátíð í bæ en leikurinn var á Ólafsvíkurvelli. Luis Romero Jorge kom heimamönnum strax yfir á þriðju mínútu áður en Abdelhadi Khalok bætti við öðru marki fyrir Víking á þeirri…Lesa meira

true

Afhenti Krabbameinsfélagi Snæfellsness 1,3 milljón króna

Eygló Kristjánsdóttir frá Stóra Kampi í Snæfellsbæ lauk nýlega 800 kílómetra göngu sinni um Jakobsveginn svokallaða. Gangan byrjaði í Saint Pied de port í Frakklandi, sem liggur við landamæri Spánar. Þaðan gekk hún yfir Pýreneafjöllin til Spánar og endaði í borg sem heitir Santiago de Compostela. Eygló segir að þessi ganga hafi verið draumur hennar síðan…Lesa meira

true

Eva Björg bæjarlistamaður Akraness

Um nokkurt skeið hefur sú hefð verið á Akranesi að útnefna bæjarlistamann á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þá nafnbót hefur Hallgrímur Ólafsson leikari borið undanfarið ár. Að þessu sinni ákvað menningar- og safnanefnd að útnefna Evu Björgu Ægisdóttur bæjarlistamann fyrir árið 2023. Eva Björg fæddist á Akranesi árið 1988 og ólst þar upp, enda nýtir hún…Lesa meira

true

Skagamenn komu til baka í markaleik og unnu stórsigur á Þrótti

Það var ekki slæmt veðrið til að leika knattspyrnu á föstudagskvöldið þegar ÍA tók á móti Þrótti í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Í staðinn fyrir vind og rigningu sem hefur aðeins látið á sér kræla síðustu vikurnar var í boði logn og markaregn. Heimamenn komust yfir eftir tuttugu mínútna leik þegar Viktor Jónsson fékk sendingu…Lesa meira

true

Flottir fiskar af heiðinni

,,Já Arnarvatnsheiðin var góð um helgina. Menn voru að fá fisk víða, bæði urriða og bleikju,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson sem fór á heiðina og fékk fína veiði. Hann hefur núna í nokkur ár farið snemma til veiða og segir það skila árangri. Ingólfur var sunnan megin á heiðinni í þetta sinn og bleikjan tók best…Lesa meira

true

Fóru í tónleikaferð um Vesturland

Píanistinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir og söngkonan Solveig Óskarsdóttir skipa tveggja manna tónlistarflokkinn Dúó Áróra. Í síðustu viku ferðuðust þær um Vesturland og héldu þrenna tónleika. Þær hófu ferð sína í Vinaminni, safnaðarheimili Akraneskirkju, fóru þaðan í Borgarneskirkju og enduðu ferð sína í Stykkishólmskirkju síðastliðinn föstudag. Anna Þórhildur og Solveig numu við Tónlistaháskólann í Maastricht í…Lesa meira

true

Úr safni: Ílengdist í Búðardal

Viðtal þetta er úr Jólablaði Skessuhorns frá árinu 2007 og birtist nú í fyrsta sinn á vef Skessuhorns í heild sinni. Víví Kristóbertsdóttir á ættir sínar að rekja til Færeyja og Vestfjarða. Hún kom sautján ára í Búðardal og ætlaði sér að vera þar í eitt ár. Síðan eru liðin 51 ár og enn hefur…Lesa meira

true

Úr safni: Get ekki verið kyrr

Í jólablaði Skessuhorns árið 2007 var rætt við bóndann, veiðimanninn og náttúrubarnið Snorra á Augastöðum. Viðtalið er nú birt á vefnum í heild sinni. Snorra Jóhannesson á Augastöðum ættu flestir að þekkja sem á annað borð hafa fylgst með fjölmiðlum síðustu ára. Hann hefur verið ötull talsmaður náttúrunnar, enda sjálfur mikið náttúrubarn. Þá hefur hann…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn!

Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag, 17. júní. Fæðingardags Jóns Sigurðssonar var fyrst minnst með opinberum samkomum árið 1907 en fyrst var haldinn almennur þjóðminningardagur á aldarafmæli Jóns 17. júní árið 1911. Það var svo árið 1944 sem 17. júní var valinn stofndagur lýðveldisins. Síðan hefur hann verið opinber þjóðhátíðardagur og almennur frídagur hér á landi.…Lesa meira

true

Reynismenn töpuðu fimmta leiknum í röð

Það gengur ekki vel hjá Reyni Hellissandi þessa dagana í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu. Eftir að hafa unnið fyrsta leikinn á móti KB um miðjan maí 1-2 hafa þeir tapað fimm leikjum í röð í deildinni og eru með þrjú stig í áttunda og næst neðsta sætinu. Fimmta tapið kom í gærkvöldi…Lesa meira